278 MENNTAMAL Bjarni Bjarnason kennari. Fæddur 2%.. janúar 1900. Dáinn 25. maí 1961. Á allt sem áttum, sundurleitt og saman, er sætzt og þakkað alvöruna og gaman! Ég finn til skarðs við auðu ræðin allra, sem áttu rúm á sama aldarfari. St. G. St. Nú eru rúmlega þrjátíu ár síðan Austurbæjarskól- inn í Reykjavík tók til starfa. Við, sem fórum að kenna við hann næstum því strax og hann byrjaði, get- um margs minnzt frá hans fyrstu dögum, og þá eink- um samstarfsmanna. Sum- ir þeirra komu víðs vegar að af landinu, en aðrir höfðu áður starfað við Miðbæjar- skólann, sem þá var eini opinberi barnaskólinn í Reykjavík má segja. Flestir þessir kennarar áttu að baki sér margs konar reynslu í kennslustörfum, bæði við farskóla og fasta- skóla. Ég held, að það sé ekki ofmælt, þó að sagt sér, að mikill áhugi ríkti meðal þessara kennara um að vinna nem- endum skólans sem mest og bezt gagn, enda latti ekki hinn ungi, glæsilegi og vel menntaði skólastjóri, Sigurður Thorlacius, menn til starfa í þágu ungu kynslóðarinnar. Eins og eðlilegt er, eru margir þessir gömlu félagar horfnir frá skólanum. Sumir kenna við aðra skóla í bæn-