MENNTAMAL 281 Aðalsteinn Eiríksson sextugur. Aðalsteinn er fæddur í Krossavík í Þistilfirði 30. okt. 1901. Sonur hjónanna Kristínar Jónsdóttur og Eiríks Pálssonar bónda. Snemma mun hugur hans hafa hneigzt til að afla sér menntunar. Hann stund- aði nám í Eiðaskóla og lauk þaðan prófi 1921. Næsta ár var Aðalsteinn kennari í Þistilfirði, en haustið 1922 settist hann í 2. bekk Kenn- araskólans og lauk kenn- araprófi 1924. Tvisvar hef- ur Aðalsteinn farið utan til að kynna sér skóla- og kennslumál. í Reykjavík var hann kennari 192324. Fyrsta árið stundakennari jafnframt námi sínu í Kennaraskólanum. Aðalsteinn var mjög fjölhæfur kennari, stjórnsamur, víðsýnn í kennsluaðferðum og vinsæll meðal nemenda. í fyrri utanför sinni kynnti hann sér söngkennslu í skólum og var um skeið í fremstu röð söngkennara. Haustið 1934 varð Aðalsteinn skólastjóri í Reykjanesi við Isafjarðardjúp. Á þessum árum skrifaði hann nokkuð í blöð og flutti erindi um skólamál sveitanna. Þar benti hann meðal annars á menningarlega nauðsyn þess að tengja sem bezt saman starfsemi skóla og heimila á sviði Aðalsteinn Eirihsson.