284 MENNTAMAL vera. Hann er einlægur vinur vina sinna, höfðingi í lund og hjálpsamur svo af ber. Aðalsteinn er kvæntur Bjarnveigu Ingimundardóttur frá Patreksfirði. Bjarnveig hefur skipað sinn sess með prýði við hlið Aðalsteins. Þau hafa eignazt fimm mann- vænleg börn, sem eru öll upp komin. Húsmóðirin hefur því löngum haft ærið að starfa á mannmörgu heimili, auk þess að vera um árabil húsfreyja á stóru skólaheimili. Menntamál þakka Aðalsteini mikil og vel unnin störf í þágu íslenzkra skólamála og árna honum og fjölskyldu hans allra heilla. Pálmi Jósefsson.