MENNTAMÁL 287 sem allir nemendur bekkjarins geta séð í einu. Þannig geta skólar komizt af með eina eða fáar smásjár. Sýningarvél ein mikil stækkaði smásjársneiðar svo mjög, að sjá mátti greinilega einstaka hluta í vöðvafrumum manna. Læknanemar við háskólann hér skoðuðu vél þessa ákaft og margspurðu, hvort háskólinn fengi ekki þessa vél. Ef háskólinn sér sér ekki fært að kaupa hana þá munum við skjóta saman og gera það, heldur en að hún fari út aftur." Vélin fór í háskólann að lokum, og má víst að miklu leyti þakka það áhuga nemenda. Mikið af munum þeim, sem á sýningunni voru, var keypt handa barna- og framhaldsskólum, og hefur skólum landsins þannig bætzt mikið af kennslutækjum. Kennslutækin voru yfirleitt mjög vönduð, sterkbyggð og úr góðu efni, en ódýr voru þau að sjálfsögðu ekki, enda fer þetta sjaldan saman. Mjög örðugt er að fást við innflutning kennslutækja á íslandi um þessar mundir, bæði vegna þess, hve markaður er þröngur, en sérstaklega vegna algerlega úreltra tolla- ákvæða. Á sumum tækjum er alls enginn tollur en á öðrum meira en 100%, sumar stofnanir. fá tolla eftirgefna, en aðrar verða að greiða fullan toll. Á meðan þessu er þann- ig farið, eru litlar líkur til, að erlend fyrirtæki vilji halda sýningar á kennslutækjum hér, og fáir fást til að eiga við innflutning þeirra. Ekki er mér kunnugt um, hvað eða hver hefur fengið Luðvig Storr, konsúl, til þess að leggja fram fé fyrir toll- um og aðflutningsgjöldum, en forvitni og von um að geta orðið litlu landi að liði, mun hafa knúið hinn lamaða þýzka forstjóra út í þetta ævintýri, og hann var ekki vonsvikinn, enda þótt pyngja hans þyngdist ekki á ferð hans hingað til lands. Aðsókn að sýningunni og áhugi á henni var eins mikill eins og í milljónaborg, að því er forstjórinn tjáði mér. Varð að framlengja sýninguna nokkra daga vegna að-