288 MENNTAMÁL sóknarinnar. Engin leið var fyrir hið fámenna starfslið að útskýra og sýna kennslutækin eins vel og þurft hefði að gera, en áhugi og skilningur fjölda fólks vaknaði, og mörg- um varð ljóst, að ungmenni okkar hafa alls ekki sömu að- stöðu til náms eins og jafnaldrar þeirra í nágrannalönd- unum. Mikið var um það rætt af lærðum sem leikum, hvaða möguleika við hefðum á því að búa skóla okkar slíkum tækjum og skapa kennurum aðstöðu til að nota þau. Lausn þeirrar gátu var víst ekki fundin á sýningunni, en nú hafa íslenzkir kennarar séð, hvernig búið er að starfs- bræðum þeirra í efnuðu löndunum. Ég vil að lokum fyrir hönd íslenzkra kennara þakka öll- um þeim, sem stuðluðu að því, að sýning þessi komst hing- að til lands, og alveg sérstaklega þakka Þjóðverjunum fyrir komuna, fyrir áhuga þeirra, erfiði og ljúfmennsku. Slíkir gestir eru ætíð velkomnir. Islenzk skólayfirvöld fóru vel af stað með þessari sýn- ingu, og vona ég, að framhald megi verða jafn glæsilegt og byrjunin. Vera má, að bætt starfsskilyrði veki nokkurn áhuga á kennslustarfinu. Það er fleira en léleg laun, sem dregur úr starfsgetu kennara hér, enda þótt störf, sem unnin eru sem aukavinna, séu sjaldan vel unnin. Reykjavík 21. okt. Guðmundur Þorláksson. P.S. Nokkuð af munum þeim, sem ekki seldust á sýning- unni, og álitið var að kennarar hér hefðu áhuga á að fá, var skilið eftir hér, svo sem smásjár, eðlisfræðiáhöld, spritpreparöt, líkön, kort o. fl. Margt af þessu er þegar selt, en nokkuð er eftir, og geta menn fengið upplýsingar um það hjá undirrituðum. Guðmundur Þorláksson Eikjuvogi 25, Reykjavík. Sími: 34101.