MENNTAMÁL 291 Sums staðar utan Reykjavíkur tóku fleiri nemendur þátt í prófinu en fram kemur í töflunni hér að framan. Eins og mörg undanfarin ár sendu nokkrir skólar nefnd- inni ekki úrlausnir þeirra nemenda, sem annaðhvort luku aldrei prófinu eða náðu svo litlum árangri, að skólastjór- ar hlutaðeigandi skóla og þeir, sem um úrlausnirnar fjöll- uðu, voru á einu máli um, að endurmat gæti engu breytt um réttindi nemendanna. Á Akranesi og í Neskaupstað gengu t. d. um eða yf ir 20 nemendur undir próf ið. Gera má ráð fyrir, að nokkrir tugir nemenda frá ýmsum skólum út um land falli af þessum sökum niður af skýrslu þessari. Munu nokkrir þeirra hafa lokið prófinu með lágri III. einkunn, en þó flestir með enn lægri einkunn, en sumir hætt í prófinu. Endurmati nefndarinnar á úrlausnum frá skólum utan Reykjavíkur var hagað á sama hátt og tvö undanfarin vor, þannig að einkum voru endurmetnar úrlausnir þeirra nem- enda, er hlotið höfðu að dómi skóla síns meðaleinkunn landsprófsgreina á bilinu 5.506.50. Endurmetnar voru að fullu úrlausnir 109 nemenda, en auk þess voru endur- metnar úrlausnir nokkurra nemenda í einstökum greinum. Endurmatið leiddi í Ijós, að við meiri hluta skólanna var annaðhvort ákjósanlegt eða viðunanlegt samræmi milli einkunnagjafa skólanna annars vegar og nefndarinar hins vegar, en við allmarga skóla þótti nefndinni mati skólanna vera nokkuð ábótavant. Nefndin ákvað að neyta heimild- ar í 16. gr. reglugerðar um miðskólapróf í bóknámsdeild frá 14. apríl 1947 og breyta lágmarkseinkunn frá fjórum skólum til inngöngu í menntaskóla og kennaraskóla. Var mark þetta, sem er 6.00, þegar allt er með felldu, hækkað frá tveimur skólum, en lækkað frá tveimur skólum. .. . Einkunnaflokkunin í töflunni hér að framan er miðuð við þær einkunnir, er nemendur hlutu að dómi skóla síns, en ekki tekið tillit til þeirra breytinga, er urðu við endur- mat nefndarinnar. Þó eru í síðasta dálki (Yfir efra