292 MENNTAMÁL marki") aðeins taldir þeir, sem réttindi hlutu til inngöngu í menntaskóla og kennaraskóla samkvæmt úrslitum prófs- ins, eftir að gerðar hafa verið þær markbreytingar, er getið hef ur verið. Þremur nemendum (Jagnfræðaskólans í Vonarstræti í Reykjavík, er eiga ólokið prófi, var gefinn kostur á að ljúka því í haust. . . . Nefndin lauk mati úrlausna og útreikningi einkunna um mánaðarmótin júníjúlí. Skólum þeim, er þátt tóku í landsprófinu, hefur nú öllum verið tilkynnt um niðurstöð- ur nefndarinnar. Forstöðumönnum menntaskólanna og Kennaraskóla Islands hefur verið send skrá með nöfnum þeirra nemenda, er réttindi hlutu til inngöngu í mennta- skóla og kennaraskóla samkvæmt úrslitum prófsins í vor, og er í þeirri skrá tilgreind meðaleinkunn hvers nemanda í landspróf sgreinum. Einkunnir nemenda og niðurstöður af endurmati lands- prófsnefndar eru allar færðar í prófbók nefndarinnar. Reykjavík, 30. júlí 1961, f. h. landsprófsnefndar. Bjarni Vilhjálmsson.