MENNTAMÁL 293 JÓN Á. GISSURARSON skólastjóri: I Kennsluskylda skólastjóra gagnfræðaskóla. Skólastjórar gagnfræðaskóla á Islandi eru kennarar, sem hafa minni kennsluskyldu en aðrir kennarar vegna skóla- stjórnar. Kennsluskylda þeirra er mismunandi eftir nem- endaf jölda, minnkar með auknum nemendaf jölda. Að sjálf- sögðu er gjört ráð fyrir, að skólastjóri skili ekki minni vinnu í kennslu og skólastjórn en aðrir kennarar. Þess má og geta, að kennsluskylda íslenzkra skólastjóra er snöggt- um hærri en skólastjóra í nágrannalöndum. í reglugerð eru ákvæði um það, að kennarar geti feng- ið lækkaða kennsluskyldu sína um 1/6 hluta við 55 ára aldur og um annan 1/6 hluta við 60 ára aldur. Þar sem kennsluskylda kennara á gagnfræðastigi er 30 stundir á viku, þá nemur þessi afsláttur 5 stundum á viku við hvort aldurstakmark. Heimild þessi er notuð. S. 1. skólaáár átti ég sem kennari rétt á lækkun kennslu- skyldu. í ágúst 1960 fór ég til fræðslumálastjóra og tjáði honum, að ég teldi kennsluskyldu mína skólaárið 1960 til 1961 lækka úr 9 stundum á viku í 4 stundir. Kom fram nokkur ágreiningur milli mín og fræðslu- málastjóra um skilning á ákvæði reglugerðar. Var því mál- inu skotið undir úrskurð menntamálaráðherra. Á miðju sumri 1961 barst svo ráðherrabréf það, sem hér fer á eftir: Ráðuneytið hef ur ákveðið, að af sláttur af kennsluskyldu skólastjóra vegna aldurs, skv. 17. gr. 1. nr. 34/1946, 38. gr. 1. nr. 48/1946, 14. gr. 1. nr. 45/1955 og 13. gr. 1. nr. 49/1946, skuli vera 1/6 af starfsskyldu skólastjóra við