294 MENNTAMAL 55 ára aldur og 1/3 við 60 ára aldur, en starfsskylda skóla- stjóra telst í þessu sambandi jafnmikil kennsluskyldu kennara í sama skólaflokki. Afslátturinn, 1/6 og 1/3, reiknast allur af kennslu- skyldu hlutaðeigandi skólastjóra og takmarkast því af stundaf jölda kennsluskyldunnar. Stundakennslukaup verð- ur því ekki greitt vegna þessa afsláttar, þótt hann nemi fleiri stundum en sjálf kennsluskyldan. Skipan þessi gildir frá 1. september 1961 að telja." Bréfið tryggir skólastjórum gangfræðaskóla ótvíræð- an rétt til afsláttar á kennsluskyldu um 5 stundir á viku við 55 ára aldur og annarra 5 stunda við 60 ára aldur. Þótt hér hafi verið aðeins rætt um rétt skólastjóra gagnfræðaskóla á lækkun kennsluskyldu, þá kveður bréf- ið og á um rétt skólastjóra barnaskóla til hliðstæðs réttar, aðeins breytast tölurnar 5 stundir í 6 stundir, þar sem kennsluskylda banrakennara er 36 stundir á viku. 10. okt. 1961.