MENNTAMÁL 295 JÓN R. HJÁLMARSSON: Ráðstefna í Sigtuna. Dagana 31. júlí til 5. ágúst var haldin norræn ráðstefna í Sigtuna í Svíþjóð. Fulltrúar voru frá öllum Norðurlönd- um, alls um 130 manns auk nokkurra gesta. Félag það, sem til ráðstefnu þessarar boðaði, heitir Nordic Associ- ation for American Studies og er skammstafað N. A. A. S. I félaginu eru menn frá öllum Norðurlöndum, og for- maður þess er Lars Áhnebrink docent við Uppsalaháskóla. Markmið félagsskaparins er að vinna að vaxandi kynnum og skilningi Norðurlandabúa á menningu og lífsvenjum fólks í Bandaríkjum Norður-Ameríku og greiða fyrir þeim, er leggja stund á að nema einhverjar sérgreinir, sem snerta Ameríku, svo sem amerískar bókmenntir, sögu, enska tungu, listir í Ameríku og margt fleira. Félag þetta er ungt að árum og var stofnað 1959. Stjórnarmaður þess af íslands hálfu er Hreinn Benediktsson prófessor. Ráðstefnan í Sigtuna er hin fyrsta, sem félagið efnir til, og er óhætt að segja, að hún tókst með ágætum og var hin ánægjulegasta í alla staði. Umræðuefni ráðstefnunn- ar var: The American Impact on Scandinavia" eða ame- rísk áhrif á Norðurlöndum. Segja má því, að af miklu væri að taka í umræðum manna, því að amerísk áhrif, hvort sem okkur líkar betur eða verr, eru orðin geysimikil á allt þjóðlíf í þessum löndum og ef til vill meiri en sumir vilja trúa í fljótu bragði. Við opnun ráðstefnunnar töluðu þeir Tage Erlander for- sætisráðherra Svíþjóðar og Graham Parson sendiherra Bandaríkjanna í Svíþjóð. Síðan hófust fyrirlestrar af