MENNTAMÁL 299 stjórnin bauð þar til góðrar veiðzlu. Var fjölmenni mikið. Þar fluttu fulltrúar hvers lands kveðjur. Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri, mælti fyrir íslands hönd og flutti þing- heimi boð menntamálaráðherra íslands um að heyja næsta norræna kennaraþingið á Islandi, en það verður haldið árið 1965. Var því boði vel fagnað. Aðalfundur Kennarafélags miðvesturlands. Aðalfundur Kennarafélags miðvesturlands var haldinn að Akranesi dagana 7. og 8. október s. 1. Fundurinn var vel sóttur. Þessi erindi voru flutt á fundinum: 1. Vetrarstarfið, Þórleifur Bjarnason, námsstjóri. 2. Kennaraeklan og launamál kennara, Aðalsteinn Eiriksson, fjár- málaeftrilitsmaður skóla. 3. TómstundastörC unglinga og samstarf heimila og skóla, Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri. Þetta var opinbert erindi og urðu áheyrendur margir. 4. Sænski kennarinn, fröken Gerda Brunskog, flutti tvö erindi um byrjunarkennslu í móðurmáli og reikningi. Miklar umræður urðu í sambandi við erindin, en þó sérstaklega um kennaravöntunina og launamál kennara. Bæjarstjórn Akraness bauð fundarmönnum og fleiri gestum til kaffidrykkju í félagsheimili templara að kvöldi fyrri fundardagsins. Seinni fundardaginn hlýddu fundarmenn messu í Akraneskirkju. Sóknarpresturinn, séra Jón Guðjónsson, messaði. Ákveðið var að halda næsta aðalfund í Stykkishólmi. í stjórn félagsins voru kjörin: Sigurður Helgason, skólastjóri, Lúðvík Halldórsson, kennari, Guð- rún Guðmundsdóttir, kennari. Öll búsett í Stykkishólmi.