300 MENNTAMÁL SITT AF HVERJU Námskeið fyrir enskukennara í framhaldsskólum. Að tilhlutan fræðslumálastjórnar og The British Council var haldið námskeið í aðferðum við enskukennslu fyrir framhaldsskólakennara. Fyrri hluti námskeiðsins fór fram í Aberdeen 28. ágúst til 9. september, en síðari hlutinn í Gagnfræðaskólanum við Vonarstræti í Reykjavík 18. 28. september. Forstöðumaður námskeiðsins var Dr. W. R. Lee, kenn- ari við Uppeldisfræðistofnun Lundúnaháskóla, en auk hans kenndu á námskeiðinu Donald M. Brander, sendi- kennari við Háskóla íslands, ungfrú Joan Hincks, kenn- ari hjá The British Council, og Heimir Áskelsson, dósent, sem jafnframt var fulltrúi fræðslumálastjóra til þess að sjá um daglega framkvæmd námskeiðsins í Reykjavík. Á námskeiðinu var lögð áherzla á nýjustu aðferðir við enskukennslu, og var einn þáttur hennar sýnikennsla, þar sem enska var m. a. kennd 11 ára börnum, sem ekkert höfðu lært í málinu áður. í sambandi við námskeiðið gekkst The British Council fyrir bókasýningu, bæði í Aberdeen og Reykjavík. Voru það mestmegnis kennslubækur í ensku fyrir útlendinga, alls konar handbækur um enskukennslu, bækur um enska málfræði, hljóðfræði o. fl. Þátttakendur á fyrri hluta námskeiðsins í Aberdeen voru samtals 15, en á síðari hluta þess í Reykjavík bætt- ust 11 við auk nokkurra, sem fengu leyfi til að hlýða á sýnikennslu á námskeiðinu. Menntamálaráðuneytið og The British Council veittu þátttakendum, sem fóru til Aberdeen, nokkurn fjárstyrk.