304 MENNTAMÁL Enn fremur tekur þingið eindregið undir þær launa- og kjarakröfur, sem stjórn B. S. R. B. setti fram í bréfi til ríkisstjórnarinnar 15. febr. s. 1. Jafnframt fól þingið stjórnum beggja sambandanna að vinna sameiginlega að ýmsum leiðréttingum og samræm- ingum á launakjörum kennara. Að lokum segir í álykt- uninni: Fáist engar viðunandi úrbætur á launakjörum kennara fyrir næsta skólaár, felur þingið stjórnum sambandanna að kanna til hvaða ráða skuli gripið. II. Tólfta uppeldismálaþing Sambands íslenzkra barna- kennara og Landssambands framhaldsskólakennara telur allmikið skorta á, að aðbúð tornæmra barna og unglinga í skólum landsins sé með þeim hætti, sem æskilegt er, og bendir á nauðsyn þess, að skólunum séu sköpuð þau skil- yrði, að hver einstaklingur fá sem bezt notið sín og þrosk- að þá hæfileika, sem hann býr yfir. Þingið fagnar því, að í Reykjavík hefur verið sett á stofn Sálfræðideild skóla og geðverndardeild við Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur. Þingið treystir því, að. nægir starfskraftar verði fengnir til að sinna því mikilvæga hlutverki, er þessum stofnunum er ætlað að rækja í þágu skólastarfsins. Jafnframt lýsir þingið stuðningi sínum við þá ákvörð- un Barnaverndarfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurbæj- ar að reisa lækningaheimili fyrir taugaveikluð börn. Þingið lýsir ánægju sinni yfir þeim undirbúningi að hagnýtingu skólaþroskaprófa, sem fram hefur farið að tilhlutan Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og þakkar for- vígismönnunum ötult starf. Jafnframt væntir þingið þess, að skólaþroskaprófin verði hið fyrsta tekin í notkun, þar sem ástæður leyfa. Þingið telur, að með öllu þessu sé lagður grundvöllur