MENNTAMÁL 305 að framhaldandi þróun þessara mála og skorar á fræðslu- málastjórnina að vinna að því, að hliðstæð þjónusta verði tekin upp utan Reykjavíkur. Þingið fagnar því, að hafinn er undirbúningur að stofn- un skóla í Reykjavík fyrir börn, sem að dómi sérfróðra manna skortir hæfileika til að stunda nám í almennum skóla, eins og gert er ráð fyrir í lögum um fræðslu barna og lögum um gagnfræðanám. Jafnframt bendir þingið á nauðsyn þess, að nú þegar fari fram gagngerð athugun á því, á hvern hátt væri bezt séð fyrir uppeldi og fræðslu barna og unglinga, sem að dómi hlutaðeigandi kennara og skólastjóra spilla góðri reglu í skólanum og eru miður heppilegt fordæmi öðrum börnum. Þingið telur einnig tímabært, að athugaðir verði mögu- leikar á stofnun síðdegis- eða kvöldskóla, þar sem hinum tornæmu unglingum yrði að loknu skyldunámi gefinn kostur á frekari fræðslu samhliða atvinnu. Þá felur þingið stjórnum S. 1. B. og L. S. F. K. að vinna að því við hlutaðeigandi yfirvöld, að eftirfarandi úrbætur verði gerðar varðandi kennslu og skólavist tor- næmra barna og unglinga: 1. 1 bekkjum fyrir tornæm börn við barna- og unglinga- skóla verði ekki fleiri nemendur en 1215. 2. Samin verði sérstök námsáætlun fyrir tornæmu börnin og daglegur kennslutími þeirra lengdur. 3. Ráðnir verði valdir kennarar til þess að annast kennsluna og verði kennsluskylda þeirra 4/5 hlutar af kennsluskyldu kennara viðkomandi skólastigs. Yfirvöld fræðslumála sjái þessum kennurum fyrir möguleikum á sérmenntun í kennslu og uppeldi tor- næmra barna og unglinga. 4. Menntamálaráðherra skipi eftir tilnefningu S. í. B. og L. S. F. K. 5 manna nefnd sérfróðra manna til 20