306 MENNTAMÁL þess að útvega og láta gera sérhæfð kennslugögn fyrir tornæmu börnin. Þingið leggur áherzlu á, að reynt verði að koma þessum tillögum í.framkvæmd, svo víða sem unnt er, í byrjun næsta skólaárs. Eftirfarandi samþykktir voru enn fremur gerðar á þinginu: 1. Uppeldismálaþing, haldið í Reykjavík dagana 3. og 4. júní 1961 skorar á stjórn B. S. R. B. að láta þegar í sumar semja frumvarp til laga um samningsrétt opinberra starfsmanna og vinna að því að fá það flutt á næsta reglulega Alþingi. 2. Uppeldismálaþing S. í. B. og L. S. F. K. ítrekar fyrri kröfur samtakanna um stúdentsréttindi kennara og þar með réttindi til háskólanáms. Ennfremur skorar þingið á nefnd þá, sem nú undirbýr laga- frumvarp um menntun kennara að hraða störfum eftir megni. 3. Uppeldismálaþingið skorar á íslenzk stjórnarvöld að vinna nú þegar að því, að ísland verði aðili að Menningar- og vísindastofnun sameinuðu þjóðanna, UNESCO. 4. Þingið skorar á menntamálaráðherra að beita sér fyrir afnámi tolla af innfluttum kennslutækjum. Þingið sóttu töluvert á 3. hundrað kennara auk margra boðsgesta, og er það fjölmennasta uppeldismálaþing, sem hér hefur verið haldið. Öll störf þingsins gengu greið- lega, og einhugur og samstaða ríkti um afgreiðslu mála. Borgarstjóri Reykjavíkur bauð þingheimi til kaffi- drykkju í Sjálfstæðishúsinu fyrri þingdaginn.