310 MENNTAMÁL leggja áherzlu á rétt og lýtalaust mál, heldur einnig auð- ugt mál, og mætti þá um leið stuðla að því, að nemendur lærðu að beita algengum orðtökum tungunnar. Semja þyrfti handbók fyrir kennara til notkunar við stílagerð, og væri æskilegt, að þar yrði að finna auk stílfræðilegra leiðbeininga sýnishorn ritgerða, gallaðra og góðra ,og sýnt fram á, í hverju gallar þeirra eða kostir væru fólgnir. Enn fremur þyrfti að bera þar saman mis- munandi stíltegundir og gera grein fyrir mismuni þeirra. Aðalfundur Kennarafélags Eyjaf jarðar. Laugardaginn 30. sept. s.l. var haldinn aðalfundur Kennarafélags Eyjafjarðar á Akureyri. Eormaður félagsins, Hannes J. Magnússon, skýrði frá, að íélagið ætti 30 ára afmæli þann 4. okt. n.k. og rakti í stórum dráttum sögu þess. Eyrsti íormaður þess var Snorri Sigfússon. Eélagið hefur gengizt fyrir mörgum námskeðium fyrir kennara á fé- lagssvæðinu, og hafa þau oft verið fjölsótt. Þá hefur það gefið út Vínnubúk í dtthagafrði og byrjendabók í reikningi Leikið og reikn- að og uppeldismálaritið Heimili og skóla í 20 ár um næstu áramót. Fimm kcnnarar gengu í félagið á fundinum. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa Hannes J. Magnús- son formaður, Eiríkur Sigurðsson, ritari, og Páll Gunnarsson, fé- liirðir. Auk venjulegra félagsstarfa fluttu eftirtaldir menn erindi á fund- inum: Stefán Jónsson, námsstjóri, um skólamál, Gerda Brunskog um byrjunarkennslu yngri barna, Sigríður Skaftadóttir um norræna kennaramótið og námskeið í sambandi við það, Gísli Jónsson, menntaskólakennari, um íslenzkukennslu, Guðjón Jónsson um spari- fjársöfnun skólabarna, og sýndi hann einnig kvikmynd um það efni, og Jóhann Sigvaldason sýndi litskuggamyndir af kennaraþing- inu og kennaranámskeiði í Danmörku. Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á fundinum: