MENNTAMÁL 311 1. Eftir því sem þjóðfélagið verður flóknara, koma upp æ fleiri vandamál í uppeldinu, ekki sízt eftir að mæður fóru í ríkara mæli að vinna utan heimilis. Þessi margþættu vandamál eru oft þses eðlis, að ekki er á annarra færi en uppeldis- og sálfræðinga að greiða úr þeim. Auk þess er það oft geysilega mikill styrkur við sjálft skóla- námið að njóta leiðsagnar sérfræðings. Fyrir því skorar aðalfundur Kennarafélags Eyjafjarðar á fræðslu- málastjóra, Alþingi og rikisstjórn að llýta, svo sem auðið er, fyrir því, að hinir stærri skólar að minnsta kosti eigi kost á slíkri þjónustu sérfræðinga, sem venjulegur barnakennari hefur ekki aðstöðu til að veita. Það mætti t. d. liugsa sér, að sálfræðistofnun í höfuðstaðnum hefði aðstöðu til að senda sálfræðinga út til hinna stærri skóla landsins. Einnig mætti hugsa ser, að einn sálfræðingur væri t. d. búsettur á Akureyri og Itíti að einhverju lcyti í lé þjónustu í liinum stærri skól- um á Norðurlandi. En hvernig sem slíku yrði annars háttað, er það mikil menningar- leg nauðsyn að koma þessari þjónustu á sem íyrst. 2. Þegar þess er gætt, að kennarastaðan, og þá einkum barnakenn- ara, er ein hin mikilvægasta ábyrgðarstaða í þjoðfélaginu, virðist ein- sætt að mjög þurfi að vanda val á mönnum í slíkar stöður. Það verður bezt gert með því að gera stÖðuna eftirsóknarverða. Nú blasir hins vegar við sú staðreynd, að vegna lélegra launa- kjara kennara liggur við borð, að loka þurfi mörgum skólum vegna kennaraskorts og með hverju ári gengur verr og verr að fá kennara með kennararéttindum að skólum landsins, ekki aðeins að hinum smærri skólum og farskólum, heldur einnig hinum stærri kaupstaða- skólum. Ef þessi flótti frá kennarastörfum heldur ál'ram, sem allar Ukur benda til, að óbreyttum launakjörum, horfir lil slíkra vandræða í þessum efnum, að eigi hefur ;iður þekkzt slíkt. Fyrir því skorar aðalfundur Kennarafélags Eyjafjarðar á fræðslu- málastjórn, Alþingi og ríkisstjórn að taka mál þetta til alvarlegrar íhugunar og úrbóta, svo að flóttinn frá kennarastarfinu verði stöðv- aður, og aftur geti hafizt eðlilegt framboð á kennurum í þjóðfélaginu. Treystir íundurinn þingi og ríkisstjórn til að ráða nú þegar bót á þessum vanda.