Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 36
122
MENNTAMÁL
Af erlendum vettvangi
Noregur
Norskir kennarar sameinast.
Tvö stærstu kennarasamtök Noregs, Norges Lærerlag og
Norges Lærerinneforbund, sameinuðust eftir 55 ára að-
skilnað og mynduðu ásamt Norsk Övingslærerlag og Norges
Skolelederlag nýtt kennarasamband, sem nefnist Norsk
Lærerlag. Þessi sögulegi atburður gerðist í hátíðasal háskól-
ans í Osló þann 9. júlí s.l. í hinum nýju samtökum eru
22000 félagar, og utan þeirra standa nú aðeins Osló Lærer-
lag og Norsk Specialskolers Lærerlag, en engan veginn er
vonlaust um, að þau taki til endurskoðunar neikvæða af-
stöðu sína til sameiningarinnar, áður en langt um líður.
6.-8. júlí voru haldin síðustu þing N.L. og N.L.F. og
samþykktu þau sameininguna, en undirbúningsstarfið hafði
staðið yfir síðan 1964, er þing beggja lýstu sig fús til sam-
einingar. Nefnd var þá sett á laggirnar til að vinna að
lausn málsins, og fengu fulltrúar smærri félaganna fjögurra
þar einnig sæti.
Verk nefndarinnar var erfitt. Skoðanir voru skiptar og
áhugamál margvísleg. Vinna varð bug á rótgrónum fordóm-
um og tortryggni, en með óþrotlegri þolinmæði tókst nefnd-
inni um síðir að sameina hina sundruðu krafta. Tvisvar
sinnum voru tillögur hennar sendar út til svæðafélaganna
og margoft til stjórna félagssamtakanna og starfsnefnda
þeirra, og í hvert skipti þurfti nefndin að taka tillit til
innsendra athugasemda og breytingatillagna. Um lokatil-
lögurnar fóru síðan fram allsherjartkvæðgreiðslur í öllum
félögunum að undanteknu Oslo Lærerlag. Aðeins í Norsk
Specialskolers Lærerlag var tillögunum hafnað, en í samtök-