22f> MENNTAMÁL Skólarannsóknir á íslandi / júlímánuði síðastliðnum var Andri ísaksson sálfrðing- ur ráðinn til skúlarannsókna á vegum Menntamálaráðuneyt- isins. Með þeirri ráðstöfun var lagt inn á nýja braut við mólun framtíðarstefnu i uppeldismálum pjóðarinnar, og á þessi starfsemi ugglaust eftir að hafa mikil áhrif á þrúun hérlendra skólamála. Þar sem vænta má, að kennurum og öðrum áhugamönn- um um skólamál þyki þessi nýjung ceði forvitnileg, fóru MENNTAMÁL þess á leit við Andra, að hann svaraði nokkrum spurningum um starf silt. Hvaða verksvið er þér ætlað? Það er hvorki meira né minna en að annast fræðilega rannsókn á íslenzka skólakerfinu öllu með tilliti til vænt- anlegra breytinga, þar á meðal lagabreytinga, í samræmi við öra þróun tímans. Og hvernig hófstu starfið? Ég byrjaði á að viða að mér gögnum, og mikill hluti tímans til þessa hefur farið í að kynna sér þau og þá aðal- lega þau íslenzku, þ. e. a. s. lög, reglugerðir, nefndaálit og önnur prentuð gögn um fræðslumál. Enn hef ég ekki að marki komizt til að athuga erlenda reynslu og rannsóknir og vinna úr þeim með hliðsjón af núverandi stöðu íslenzka skólakerfisins, og er það þó mjög brýnt verkeíni. Nú, jafn- framt hef ég hafið nokkra könnun skólakerfisins almennt með opnum og miðuðum viðtölum við skólamenn. Hvert er markmiðið með þessum viðtölum? Þau eru undirbúningur undir almenna og formlega