MENNTAMAL 227 Andri ísaksson er íæddur í Reykjavík 14. nóvember 1939, sonur hjónanna Sigrúnar Sig- urjónsdóttur og ísaks Jónsson- ar. Hann lauk stúdentsprófi frá M.R. vorið 1958, stundaði síð- an nám í sálarfræði og almennri félagsfræði við háskólana í Grenoble og Sorbonne á árun- um 195865 og lauk licence és lettres prófi frá hinum síðar- nefnda. Andri starfaði á Sál- fræðideild skóla í Reykjavík, unz hann tók við núverandi slarli sínu. Andri ísahsson. yfirlitskönnun á skoðunum kehnara og annarra skólamanna á ýmsum þáttum skólastarfsins. Hvenær verður sú könnun gerð? Hún verður gerð síðari hluta vetrar, væntanlega í febrúar eða marz, en þá munu kennarar fá gögn í hendur til útfyilingar. Ég vona, að kennarar muni taka þessari könnun vel og sýna samstarfsvilja. Hvað viltu segja um námsefni og námsskrá? Það er einn þáttur þessa starfs að athuga námsskrána, einkum með tilliti til notkunar hennar og áhrifa á vinnu- brögð skólans, svo og aðhæfingar hennar að nútímaþörfum. Um þetta hef ég þegar rætt við nokkra skólamenn. í þessu sambandi er líka nauðsynlegt að kanna erlenda reynslu, sérstaklega varðandi námsbækur og önnur hjálpartæki við kennslu, námsefni skóla, skiptingu þess og kjörfrelsi, svo og hlutverk námsskrárinnar. Þá er í ráði að fá sérfróða