228 MENNTAMÁL kennara til að semja álitsgerðir um gildi ýmissa námsbóka, sem nú eru við lýði. Hefurðu fleiri verkefni með höndum? Já, ég vinn t. d. að athugun á skólamálum strjálbýlisins í samvinnu við OECD-nefndina, sem fæst við hagræna rann- sókn íslenzkra menntamála með tilliti til áætlanagerðar. Helztu vandamálin, sem ég læt mig varða þar, eru jafn- vægi menntaframboðs í dreifbýli og þéttbýli, stærð dreif- býlisskóla frá uppeldisfræðilegu sjónarmiði, og loks heima- vist, heimanakstur og heimanganga, séð frá uppeldis- og sálfræðilegum sjónarhóli. Þig skortir sýnilega ekki verkefni. Ekki geturðu ann- að öllu þessu einn þíns liðs? Starf sem þetta verður aldrei unnið að nokkru veru- legu gagni af einum manni. Það sem hann getur gert er fyrst og fremst að skipuleggja starfið og velja verkefnin. Hér þurfa fleiri að leggja hönd á plóginn ekki nauðsyn- lega menn í föstu starfi til að byrja með, heldur mætti ráða menn til að sinna afmörkuðum viðfangsefnum, eins og ég nefndi reyndar áðan. Þið eruð þrír, sem berið ábyrgð á þessu starfi, er ekki svo? Jú, ég hef mér til ráðuneytis tvo afbragðsmenn, þá Jóhann S. Hannesson skólameistara á Laugarvatni og dr. Wolfgang Edelstein, sem vinnur að menntarannsóknum við vísindastofnun í Berlín. Ég tel það ómetanlegt, að þessir menn skuli hafa viljað tengjast rannsóknunum. Hitt er svo aftur rétt, því miður, að þeir eru báðir störfum hlaðnir og geta lítið sinnt rannsóknunum nema á sumrin. Hvað geturðu sagt mér um vinnuskilyrði og aðbún- að? Þau mál hafa nú loksins færzt í viðunandi horf. Eftir nokkurra mánaða þröng hafa Skólarannsóknirnar fengið gott húsnæði á efstu hæð í enda húseignarinnar Borgartúni