MENNTAMÁL 229 7, uppi yfir Fræðslumálaskrifstofunni, og er skólamönnum velkomið að hafa samband við okkur þar. Hvenær má svo vænta niðurstöðu þessara rannsókna? Það fer að sjálfsögðu eftir því, hvað menn vilja kalla niðurstöðu. Ég á ákaflega erfitt með að gera áætlun um þetta á því stigi, sem verkið er núna, en vona samt, að eigi síðar en eftir fjögur ár gætu legið fyrir nægjanlegar niður- stöður til að grundvalla á tillögur um formlegar skipulags- breytingar. Rétt er þó að geta þess, að á þessum fyrstu ár- um má ýmislegt gera, m. a. ýmiss konar tilraunir. Er eitthvað á döfinni í því efni? Engar tilraunir eru enn hafnar að okkar frumkvæði og munu væntanlega ekki hefjast fyrr en næsta haust. Hins vegar styðjum við tilraun með kennslu nýju stærðfræðinn- ar" í 7 ára bekkjum Laugarnesskólans og Hvassaleitisskól- ans. Sú tilraun er undir okkar eftirliti, og ríkið tekur þátt í kostnaðinum af henni, en slíkt hefur ekki verið gert áður. Sama gildir um tilraun með dönskukennslu í 6 tólf ára bekkjum í þremur barnaskólanna í Reykjavík, sem Ágúst Sigurðsson námsstjóri stýrir. Hvað um tilraunina með kjörfrelsi námsgreina, sem fram fer í gagnfræðadeildum Vogaskólans? Við mæltum einnig með að hún yrði leyfð. Þar er að vísu ekki um eftirlit að ræða enn sem komið er, heldur samráð. Telur þú að hægt sé að gera einhverjar breytingar á skólastarfinu, áður en endanlegar niðurstöður af rannsókn- unum liggja fyrir? Já, einhverjar ekki sízt í framhaldi af fyrstu niður- stöðum tilrauna, ekki einungis þeirra tilrauna, sem þegar hafa verið nefndar, heldur einnig og ekki síður þeirra, sem hafnar verða næsta haust eða jafnvel síðar. Þú hefur þá sjálfur tilraunir á prjónunum? Já, en undirbúningur að þeim er enn skammt á veg kominn, og ég vil sem minnst um þær ræða enn þá. Ég get