MENNTAMÁL 233 BALDUR RAGNARSSON kennari: Ritþjálfim í skólum II. Ritþjdlfun i gagnfrðaskóhim. í fyrri hluta þessarar greinar var einkum fjallað um forþjálfun og ritþjálf- un nemenda á barnaskóla- stigi, þótt margt af því eigi raunar einnig við um eldri nemendur. Er og svo, að erfitt getur verið að benda á ákveðna samsvörun milli aldurs og sköpunarþroska, þannig að æfingar við hæfi byrjenda kynnu jafnvel að vera nauðsynlegar sumum nemendum á gagnfræða- stigi, einkum þeim, sem farið hafa á mis við æski- lega forþjálfun í barna- skóla; vil ég í því sambandi leggja áherzlu á stöðuga nauðsyn talæfinga og munnlegrar tjáningar samhliða ritæfingum. Þess ber og að minnast, að gagnfræðanámið rís á þeim grundvelli, sem barnafræðslan hefur lagt; á þetta hvað skýrast við um móðurmálsnámið; traustur undirbúningur eiginlegrar ritþjálfunar í barnaskól- um myndi marka stefnu á því sviði, sem bæri að halda rnarkvíst fram í gagnfræðaskólum. En ég held, að um það Baldur Ragnarsson.