MENNTAMÁL 237 til skapandi ímyndunarafls nemenda, en jafnframt veita fastar skorður nauðsynlegt aðhald og aga í hugsun. Slík markvís samning efnisgreinar er og væntanlega mikilvægur undirbúningur eiginlegrar ritgerðarsmíðar. Ég nefni hér fá- ein dæmi um æfingar af þessu tæi: A. Semjið frásagnir, er séu ein efnisgrein hver, þar sem eftirfarandi málsgreinar séu upphöf. Lengd hverrar efnis- greinar sé um 100 orð. 1. Ég reif bréfið upp í flýti. 2. Það var sama hvernig við reyndum, bíllinn neitaði að fara í gang. Upphöf þessi vekja öll áhuga. Nemendum ætti því ekki að veitast erfitt að prjóna við hæfilegt framhald, er stefndi að ákveðinni aðalhugmynd. B. Semjið frásagnir, er séu ein efnisgrein hver, þar sem eftirfarandi málsgreinar séu niðurlög. Lengd efnisgreinar sé um 100 orð. 1. Nú máttu opna augun," sögðu þau. 2. Konan hafði þá haldið mig vera þjóf! 3. Ég horfði á eftir seðlinum, þar sem hann flaut niður ána. Niðurlög þessi fela öll í sér hámark, sem undanfarandi frásögn verður að nálgast stig af stigi. C Semjið frásagnir, er séu ein efnisgrein hver, þar sem eftirfarandi málsgreinatvenndir séu fyrstu og síðustu máls- greinar. Lengd efnisgreinar sé rúmlega 100 orð. 1. a. Mér fellur ekki heldur þessi hattur," sagði konan. b. Borðið var þakið höttum. 2. a. Nú er stundin komin," heyrðist rödd segja. b. Einhver hafði gleymt að slökkva á viðtækinu. 3. a. Við tökum á móti þér á flugvellinum," sagði pabbi um leið og hann kvaddi mig í símanum.