254 MENNTAMÁL HAUKUR HELGASON skólastjóri: Frá kennslutækjasýningunni í Basel í sumar var haldin mikil kennslutækjasýning í Sviss. Sýningu þessa héldu helztu framleiðslu- og sölufyrirtæki kennslutækja og bóka í Evrópu. Árið 1951 stofnuðu þessir aðilar með sér samtök, sem þeir nefndu Association Européenne de Matériel Didacti- que, skammstafað Eurodidac. Síðan þá hafa samtök þessi gengizt fyrir átta miklum sýningum á kennslutækjum og bókum. Sýningar þessar hafa hlotið nafnið Didacta, og sýn- ingin í sumar hét því 8. Didacta. Sýningin var haldin dag- ana 24.-28. júní í hinni miklu sýningarhöll svissneska iðn- aðarins í Basel. Þarna sýndu 500 fyrirtæki frá 16 löndum á gólffleti, sem er 35.000 m2. Skipulag sýningarsvæðisins var svipað og á iðnsýning- unni hér í haust. Hvert fyrirtæki hafði sinn afmarkaða bás, og básum þeirra fyrirtækja komið fyrir hlið við hlið, sem sýndu vörur svipaðs eðlis. Sumum, sem áður höfðu séð þessar sýningar, þótti stór- fyrirtækin setja of mikinn svip á sýninguna og SÖknuðu margra ágætra smærri fyrirtækja, sem áður höfðu sýnt. Útbúnaður í tungumálastofur, audio-visuel kennslutæki, útbúnaður í eðlis- og efnafræðistofur, stærðfræðitæki, sér- staklega til innlagningar stærðfræðihugtaka og fjölbreytt úrval föndur- og handavinnuefnis var meðal þess, sem vakti sérstaka eftirtekt skoðenda frá íslandi við fyrstu sýn. Útbúnaður í tungumálastofur átti mikið rými á sýning- unni og vakti verðskuldaða athygli. Virtist um að ræða tvær megin gerðir, auk smærri útbúnaðar til hjálparkennslu.