256 MENNTAMAL Micro Projectors-Teach A-l. MicM.ro Projectors-Teach A-l. Tæki þetta er smásjá, sem varpar mynd viðfangsefnisins á vegg eða borð. Það, sem skoða á í smásjánni, er sett undir linsuna á venjulegan hátt, en síðan kemur mynd þess fram á borðinu undir smásjánni eða uppi á vegg, ef tækinu er beint þangað. Möguleiki er því fyrir hendi að nota tækið ýmist í kennslu fyrir heilan bekk, eða láta einn eða fleiri nemendur vinna með það. Tæki þetta vakti mikla athygli, enda sýndi framleiðandinn af mikilli leikni fjölbreytta möguleika tækisins. Meðal annars tók hann gullfisk upp úr keri, brá sporði hans undir linsuna og gátu þá áhorf-