268 MENNTAMÁL bæði í september og febrúar. Þau koma þá inn rúmlega 20 talsins í hópi. Þessi hópur nýtur ávallt kennslu ásamt öðrum jafnstórum hópi: Fyrsta misserið er hann með hópi, sem byrjaði í skólanum 6 mánuðum fyrr, annað misserið er hann með hópi, sem er að hefja sitt skólanám, 6 mán- uðum á eftir þeim sjálfum. Hver bekkur samanstendur alltaf af tveim hópum nemenda, þ. e. a. s. 40 nemendum, þar sem annar helmingurinn er alltaf 6 mánuðum á undan (eða eftir) hinum. Þetta kerfi skapar minni bekkjartilfinn- ingu en við eigum að venjast og bekkjartakmörkin eru sveigjanlegri, þannig að barnið getur flutzt upp eða niður um hálft ár án þess að eftir verði tekið. í kennslustofunni er ekki kennaraborð í hefðbundnum stíl. Kennarinn hefur borð, sem hægt er að flvtja til og frá, og börnin hafa líka auðfæranleg borð og stóla. Kennslan fer næstum alltaf fram í hópum, oftast fjórum. Hver hópur fær sitt afmarkaða verkefni, og meðan þrír þeirra vinna hver að sínu verkefni, hnappast hinn fjórði umhverfis kenn- arann: það er hópurinn, sem kennt er. Þegar þeirra tími er liðinn, kemur röðin að næsta flokki, en sá fyrri tekur til við það verkefni, sem hann hvarf frá, á sínum samastað. Jafnframt kennslunni fylgist kennarinn með hinum % hlutum bekkjarins, en að mestu verða þeir þó að vinna sjálfstætt. Þau eru örvuð til að hjálpa hvert öðru og gagn- rýna hvert annað, en hver einstaklingur vinnur með sínum eðlilega hraða og á sinn persónulega hátt. Áður en skóla- tíma lýkur, verða allir að hafa lokið skylduverkefnum dags- ins. Að því loknu geta þeir sinnt því, sem þeir hafa löng- un til. Nemendur tilheyra ekki sama hópnum í öllum greinum. Sá sem er í hópi Maríu í reikningi getur verið í hópi Rík- harðar í lestri og í Önnu hópi í skrift. Hóparnir eru ekki fastmótaðir til lengri tíma, börnin flytjast til, eftir því sem þau taka framförum og henta þykir. Enginn hópur er álitinn betri eða lakari en annar. Þurfi nemandi á auka-