274 MENNTAMAL SIGURÐUR GUNNARSSON kennari: Vinnum að bættri skipan á sviði barnabókmennta í fyrsta hefti tímaritsins Heimili og skóli á þessu ári skrifar ritstjóri þess, Hannes J. Magnússon, fyrrum skólastjóri, athyglis- verða grein, eins og oft fyrr. Fjallar hún um les- efni barna og unglinga og nefnist: Er vel séð fyrir barnabókum?" Grunntónn greinarinnar er sá, eins og vænta mátti frá þessum merka skólamanni, að benda á og undirstrika, hve mikilvægt það sé, að börn og unglingar eigi kost á góðu og þroskandi les- efni, og að ábyrgir aðilar, sem treysta mætti fullkomlega, gæfu ákveðnar leiðbeiningar í því efni. í öðru lagi bendir greinarhöfundur á þá staðreynd, að þótt mikið sé gefið út af barnabókum árlega hér á landi, þær voru víst rétt um áttatíu á síðastliðnu ári, séu aðeins örfáar eftir íslenzka höfunda. Langsamlega fJestar Sigurður Gunnarsson.