278 MENNTAMAL Þessi forlög hafa veitt verðlaun undanfarin ár: Aschehoug, Damm, Noregs Boklag (verðlaun þess á síðastliðnu ári voru kr. 17.000,00 norskar) og einnig Norsk Kulturfond. Verðlaunaafhending fer ætíð fram með hátíðlegum hætti. Hér hefur stuttlega verið vikið að aðkallandi nauðsynja- máli, sem bókaþjóðin íslenzka getur ekki lengur verið þekkt fyrir að láta reka á reiða. Ég treysti kennarastéttinni bezt að vinna sem fyrst að framgangi málsins. Ég skora því að lokum á stjórnir kennarasamtakanna stóru, S.Í.B. og L.S. F.K., sem standa að þessu riti, að kjósa sem allra fyrst nefnd, sem vinni að viðunandi lausn þessa mikilvæga máls æsku íslands til aukins þroska og blessunar. Ef VK penninn skrifar illa, læknum strax þann kvilla í_____ PENNAVIÐGERÐIN Vonarstræti 4 - Sími 10207. -