MENNTAMÁL 281 a) fræðslumálastjórn og Menntamálaráðuneytið, b) kennaraskólarnir, c) bæjar- og sveitarfélög, d) félagasamtök kennara. 1. Námskeið. Námskeið fyrir kennara eru yfirleitt haldin, þegar skólar starfa ekki, á tímanum júníseptember. Lengd þeirra er mismunandi, frá 2 dögum og upp í tvær til þrjár vikur, allt eftir því hvaða efni er tekið fyrir. í þéttbýli eru stundum kvöldnámskeið, sem er þá unnt að sækja með fullu starfi. Þau geta verið mismunandi löng, jafnvel allan veturinn. Venjulegast er aðeins ein námsgrein tekin fyrir á hverju námskeiði, þó geta þær verið fleiri. 2. Frðslufundir. Á starfstíma skólanna eru oft haldnir fræðslufundir með kennurum og þá ætlazt til, að þeir sæki þessa fundi, sem oftast standa 13 daga. Á þessum fundum eru haldin erindi um skóla- og uppeldismál, kynntar nýjungar í kennsluhátt- um, kennslutæki og fleira. Telja verður að þorri kennara sæki þessa fundi, en tölu- legar upplýsingar liggja ekki fyrir. 3. Leiðbciningar námsstjóra. Starfandi eru námsstjórar í ýmsum sérgreinum og einnig á ákveðnum svæðum, veita þeir kennurum margvíslegar leiðbeiningar í starfi, bæði með því að ræða við þá eins- lega, flytja erindi fyrir kennarahópa og leiðbeina um val og notkun kennslubóka og kennslutækja.