282 MENNTAMÁL 4. Orlof. Samkvæmt lögum um orlof er heimilt að veita kennur- um, sem kennt hafa í 10 ár eða lengur, leyfi frá kennslu allt að einu ári á fullum launum, enda sanni viðkomandi, að hann noti leyfið til þess að afla sér aukinnar þekkingar í kennslugreinum sínum. Árlega njóta þessara réttinda 1 2% starfandi kennara. 5. Námsdvöl erlendis. Á hverju ár sækja kennarar nám til annarra landa um lengri eða skemmri tíma. Einkum munu kennarar erlendra mála sækja mikið námskeið og skóla erlendis, en tölur liggja ekki fyrir um þetta, né hve reglulega kennarar hafa sótt slík námskeið. Skrá yfir kennaranámskeið, Þar sem námskeiðin eru veigamesti þátturinn varðandi viðhaldsmenntunina, þótti mér forvitnilegt að kanna, hve víðtæk þau hafa verið þessi ár, og mun ég hér bæta við þá skrá árinu 1966. Skilin milli námskeiða og fræðslufunda eru ekki ætíð alveg ljós, en sé ein námsgrein tekin fyrir og um hana fjall- að, þó ekki sé nema í 23 daga, er það flokkað undir nám- skeið, en undir fræðslufund, þegar ýmis efni eru tekin fyrir. Um fræðslufundi Hggja ekki fyrir nægjanlega góðar heimildir, til þess að ég hafi talið fært að gera skrá yfir þá, hliðstæða skránni yfir námskeiðin. Það skal tekið fram, að skráin yfir námskeiðin er tekin saman eftir upplýsingum frá þeim aðilum, sem séð hafa um viðkomandi námskeið. Hins vegar er hugsanlegt, að fleiri námskeið hafi verið haldin umrætt tímabil, t. d. á vegum einstakra skóia eða kennarafélaga, en upplýsingar um þau eru mér ekki handbærar.