MENNTAMÁL 287 Þau námskeið, sem talin eru upp í skýrslunni, eru að mestu leyti sótt af kennurum við barna- og gagnfræðaskóla- stigin. Við útreikning hlutfallstölu kennara, sem námskeið- in sóttu, er tekinn fjöldi fastráðinna kennara á barna- og gagnfræðastigi ásamt kennurum í húsmæðraskólum, vegna þess að þeir sækja ásamt hússtjórnarkennurum gagnfræða- skólanna hússtjórnarnámskeiðin. Kennarar, sem hafa l/£ kennslu á gagnfræðastigi, eru ekki taldir með í heildar- tölunni, þar sem þeir starfa flestir við barnaskóla að hin- um hlutanum og eru taldir með þar. Hér er aðeins um að ræða mjög fáa kennara. Þeir, sem sótt hafa námskeið erlendis, eru ekki taldir með og upplýsingar um tölu þeirra ekki handbærar. Yfirlitstölur námskeiða eru sem hér segir: Fjöldi Þátt- Fastir Hlutfallsleg Ár námsk. takendur kennarar þátttaka 1963 ........ 14 529 1252 42.25% 1964 ........ 14 360 1332 27.03% 1965 ........ 14 605 1378 43.90% 1966 ........ 15 588 1412 41.64% Niðurlagsorð. Það er augljóst af þessari smávægilegvi könnun á nám- skeiðssókn íslenzkra kennara, að hún er mjög mikil, og má af henni marka áhuga kennara á því að halda menntun sinni vel við og auka hana. Hin mikla þátttaka í námskeiðvmum ætti einnig að verða Menntamálaráðuneyti og kennarasamtökum hvatning til þess að skipuleggja námskeið nokkur ár fram í tímann og byggja þau upp, þannig að unnt verði með því að sækja ákveðinn fjölda námskeiða að fá viðurkennda námsviðbót eða aukin réttindi, á sama hátt og ársdvöl í kennaraháskóla veitir barnakennurum rétt til launabóta. Mér virðist kominn tími til að viðurkenna námskeið sem