290 MENNTAMÁL Melaskólann, þar til fyrir tveimur árum, að hann var skip- aður námsstjóri á Austurlandi. Skúli hreifst snemma af hugsjónum ungmennafélaganna og hefur lagt þær hugsjónir til grundvallar í öllu sínu starfi og reynzt þeim trúr. Hann hefur ekki litið á kennslustarfið sem ítroðslustarf eingöngu, en lagt mikla alúð við hinn uppeldislega og félagslega þátt þess. Skúli hefur starfað mikið að félagsmálum um dagana og unnið gott starf á þeim vettvangi. Hann hefur ætíð verið í fararbroddi, enda vel til forystu fallinn. Fyrir tæpum sjö árum var hann kjörinn í stjórn S.Í.B. og þá þegar formaður. Á þessum árum hefur hann unnið ötullega að hagsmunamálum barnakennara og hvergi hlíft sér. Samband íslenzkra barnakennara vill á þessum tímamót- um flytja Skúla alúðarþakkir fyrir störf sín unnin í þágu samtakanna og árnar honum allra heilla í framtíðinni. Ingi Kristinsson, varaform. S.Í.B. L