MENNTAMÁL 291 Lúðvíg Guðmundsson Lúðvíg Guðmundsson fæddist 23. 6. 1897 í Reykjavík. Hann varð stúdent 1917 frá Menntaskólanum í Reykjavík og nam síðan náttúrufræði, læknisfræði og guðfræði í Kaupmannahöfn, Berlín og Reykjavík til 1925. Hann kynnti sér skóla og uppeldismál í mörgum löndum, var síðan kennari við Menntaskólann í Reykjavík og skólastjóri á Hvítárbakka og við Gagnfræðaskóla ísafjarðar. Hann vann margvísleg störf fyrir stúdenta. Árið 1939 stofnaði hann Handíðaskólann (nú: Myndlista- og handíðaskóli íslands).