MENNTAMÁL 299 Frá Fræðslumálaskrifstofunni Kcnnaranámsheið. Síðastliðið haust hafa verið haldin mörg námskeið fyrir kennara í barna- og íramhaldsskólum, bæði í Reykjavík og annars staðar á landinu. í september voru haldin á vegum fræðslumálastjórnar eða með stuðningi hennar 5 námskeið. Allt voru það dagnámskeið. Þau sóttu 164 kennarar víðs vegar að af landimi. Flestir voru þeir úr barna- og gagnfræðastigsskólum. Auk reglulegra þátttakenda sóttu hluta af nám- skeiði eða einstök erindi milli 25 og 30 kennarar. Munu þetta vera cinhver yfirgripsmestu kennaranámskeið, sem lialdin hafa verið hér á landi til þessa, og er ánægjulegt til þess að vita, hve vel sótt þau voru. Námskeið þessi voru: 1. Námskeið fyrir dönskukennara stóð frá 1.20. september. Það sóttu 37 kennarar. Stjórnandi námskeiðsins var Ágúst Sigurðsson, námsstjóri. Kennarar, auk námsstjórans, voru Danirnir Niels Ferlov, mennta- skólarektor, Henning Harmer, námsstjóri, Sveinn Bergsveinsson, prófessor, og Torben Friðriksson, cand. oecon. 2. Námskeið fyrir söngkennara stóð frá 1.9. scptember og sóttu það 32 söng- og tónlistarkennarar. Stjórnandi þess var Guðmund- ur Guðbrandsson. Kennarar voru dr. Hermann Rcgner frá Carl Orff Institut í Salz- burg, Margret Daub og Sigríður Pálmadóttir. Erindi fluttu dr. Róbcrt A. Ottósson, Þorkell Sigurbjörnsson og Óskar Halldórsson. 3. Námskeið íyrir íslcn/kukennara í gagniræðaskólum stóð frá 5. 16. september. Stjórnandi þess var Óskar Halldórsson námsstjóri. Námskeiðið sóttu 34 kennarar og auk þess 13 óreglulega. Aðal- viðfangsefni námskeiðsins var íslenzkar bókmenntir og kynning þeirra í gagnfræðaskólum. Kennarar, auk námsstjórans, voru: Dr. Steingrímur J. Þorsteins- son, prófessor, Jón Böðvarsson, menntaskólakennari, Baldur Ragnarsson, cand. mag., og Einar Bragi Sigurðsson, rithöíundur. 4. Starfsfræðslu- og íélagsfræðinámskeið stóð frá 5.16. september. Stjórnandi þess var Stefán Ólafur Jónsson, námsstjóri. Reglulegir þátttakendur voru 28, en nokkrir sóttu hluta námskeiðsins.