MENNTAMÁL 301 5. Skagaströnd 14.16. október. Aðalviðfangsefnið var starfræn kennsla. Leiðbeinandi var Sigurþór Þorgilsson, kennari í Reykja- vik. Erindi flutti Valgarður Haraldsson námsstjóri um skólastarfið. Þátttakendur voru 26. Frðslufundir. Fræðslufundur fyrir íþróttakennara var haldinn í Reykjavík dagana 28. og 29. október s.l. Til fundarins var stofnað af íþróttafulltrúa ríkisins og skólastjóra íþróttakennaraskóla íslands. Aðalviðfangsefni fundarins var leikfimi og útivist. A fundinum fluttu erindi: Árni Guðmundsson skólastjóri, Andri ísaksson sálfræðíngur, Benedikt Tómasson skólayfirlæknir, Stefán Kristjánsson íþróttakennari, Vignir Andrésson íþróttakennari og Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi. Seinni fundardaginn kom á fundinn Valdemar Hansteen, stjórnandi leikfimiflokks frá íþróttaskólanum í Ollerup í Danmörku, sem hing- að kom og sýndi fimleika. Skýrði Hansteen fyrir íþróttakennurum æfingar, stökk og ýmsar starfsaðferðir. Fundinn sóttu 118 íþróttakennarar. Fræðslufundur var haldinn á Selfossi dagana 6. og 7. nóvember fyrir kennara á Suðurlandi. Þar fluttu erindi: Guðmundur Arnlaugsson rektor um stærðfræði, Stefán Ól. Jónsson námsstjóri um starfsfræði í skólum og Stefán Júlíusson framkvæmdastjóri um fræðslumyndir og kennslu- tæki. Þátttakendur voru 35. I Kópavogi var fræðslufundur fyrir Kjósarsýslu og Kópavog 14. nóvember. Erindi fluttu: Guðmundur Magnússon um lesgreinakennslu, Stefán Ol. Jónsson námsstjóri um starfsfræði í skólum og Stefán Júlíusson framkvæmdastjóri um fræðslumyndir og kennslu- tæki. Þátttakendur voru 52.