.'504 MENNTAMÁL Bókafregnir Jenna og Hreiðar Stefdnsson: ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LESA. Teikningar gerði Baltasar. Útgefandi: Ríkisútgáfa námsbóka. Prentun: Kassagerð Reykjavíkur. Setning: Prentsmiðja Hafnarfjarðar. Eins og öllum landslýð er kunnugt, hefur Ríkisútgáfa námsbóka sent frá sér hin síðari ár margar ágætar náms- bækur í ýmsum greinum og vel úr garði gerðar. Hefur þar fátt verið til sparað, enda nú svo komið, að þessar bækur útgáfunnar eru fyllilega sambærilegar við það bezta, sem gert er á sama sviði meðal grannþjóðanna. Öllum kennur- um er þetta að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni og er þeim ljúft og skylt og flytja útgáfunni hugheilar þakkir og óska henni til hamingju með hinn glæsilega árangur. Á síðastliðnu sumri sendi Ríkisútgáfan frá sér litla, fallega bók, sem bætir úr brýnni þörf. Þetta er bókin Það er leiknr að lesa, 112 blaðsíður í hæfilegu broti, eftir hina kunnu barnabókahöfunda, hjónin Jennu og Hreiðar Stefánsson. Teikningar í litum, margar og mjög góðar, prýða bókina og gefa henni aukið gildi. Þær eru eftir Balt- asar. Leturgerðin er greinileg og falleg. Bók þessari er ætlað það hlutverk fyrst og fremst, að vera æfingabók barna í lestri, að brúa það bil, sem er milli Lesbóka nýs flokks og Lesbóka LIV. flokks, og er 1. hefti af fjórum, sem hugsað er í þeim tilgangi. Allir barnakenn- arar munu fagna þessu framtaki Ríkisútgáfunnar og vera höfundum þakklátir, því að þarna hefur einmitt vantað tilfinnanlega hentugt æfingalesefni fyrir börnin. Ég hef lesið þetta fallega hefti, mér til mikillar ánægju,