MENNTAMÁL 307 nýstárlegu viðfangsefni, sem þessi kafli býður honum við að glíma. Höfundur getur þess í formála bókarinnar, að hún sé samin einna helzt með nemendur landsprófsdeilda í huga. Nú hef ég ekki haft aðstöðu til að reyna bókina við kennslu, en ég fæ ekki betur séð en höfundi hafi vel tekizt um efnis- val og efnismeðferð. Mér kæmi ekki á óvart, þó að við- fangsefni bókarinnar reyndust nemendum á þessu reki nokkru auðveldari viðureignar en margt af því, sem þeim er annars ætlað að nema í stærðfræði. Þó virðist mér þau muni einkar vel til þess fallin að glæða skilning á vissum grundvallarlögmálum stærðfræðinnar, og margvísleg tilefni geía þau til þroskavænlegrar ígrundunar. í bókinni eru 35 skýringarmyndir, sem Torfi Jónsson hefur gert í samráði við höfund. Myndirnar eru mjög skýr- ar og lesandanum til mikils hagræðis og skilningsauka. Stærð bókarinnar er 6 arkir. Fremst er efnisyfirlit og for- máli, en aftast orðaskrá. Þar er að finna öll þau nýyrði, sem notuð eru í bókinni, ásamt þeim orðum, sem þar eru not- uð í nýrri eða breyttri merkingu. Þetta er augljós kostur. Isafoldarprentsmiðja hefur prentað bókina, og sé ég ekki betur en það verk sé hið bezta af hendi leyst. Sá er einn tilgangur með þessum línum að vekja athygli kennara á þessari forvitnilegu bók og þeirri nýju stefnu, sem hún kynnir lesendum sínum. Ég tel einsætt, að íslend- ingar hljóti að gefa þessari stefnu fyllsta gaum, og mér virðast horfur á, að hún verði nokkurs ráðandi í stærðfræði- kennslu hérlendis óðar en varir. Kennurum er því án efa ráðlegt að kynna sér þessa stefnu eftir föngum. Ef þeir lesa bókina Tölur og mengi og brjóta viðfangsefni hennar til mergjar, verða þeir strax nokkurs vísari. Kristinn Gíslason.