Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 15

Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 15
21. þing S. I. B. 5.-7. júní 1970 21. fulltrúaþing Sambands íslenzkra barnakennara var haldið í Melaskólanum í Reykjavík dagana 5.—7. júní s.l. Þingið var sett kl. 10 árdegis föstudaginn 5. júní af formanni sambandsins, Skúla Þorsteinssyni. Bauð hann gesti þingsins velkomna, en síðan vék hann að ýmsum málum, sem efst eru á baugi meðal kennara. Að þingsetningu lokinni ávarpaði menntamálaráð- herra, Gylfi Þ. Gíslason, þingið. Ræddi ráðherra um kennaranámið og framvindu þess. Kvað ráðherra von á nýrri löggjöf um kennaranám, einnig væri væntan- legt frumvarp að nýjum fræðslulögum, sem lagt yrði fyrir Alþingi næsta haust. Þá ræddi hann um áhrif fjöl- miðla og afstöðu þeirra til skólanna. Taldi ráðherrann, að fréttaþorsti fjölmiðla beindist um of að neikvæðum fréttum. Að lokum árnaði ráðherrann þinginu allra heilla. Þá fluttu eftirtaldir aðilar kveðjur og árnaðaróskir: Kristján Thorlacius, formaður B.S.R.B., Ólafur S. Ólafsson, formaður L.S.F.K., og Jón B. Hannibalsson, formaður F.H.K. Að loknum ávörpum gestanna flutti Þorsteinn Sig- urðsson framsögu um kennaramenntunina og lýsti til- lögum, sem 7 manna nefnd, skipuð af sambandsstjórn, hafði undirbúið. Að lokinni framsöguræðu Þorsteins var þingfulltrúum og gestum boðið í hádegisverð að Höfða í boði borgarstjórnar Reykjavíkur. Þingfundur hófst að nýju kl. 14. Þegar kjörbréfa- nefnd hafði lýst tillögum sínum, sem voru samþykktar samhljóða, voru kjörnir starfsmenn þingsins. Teitur Þor- leifsson var kjörinn 1. forseti, Haukur Helgason 2. for- seti og Edda Eiríksdóttir 3. forseti. Ritarar voru kjörnir Sigurður Pálsson og Valgerður Kristjónsdóttir. Að þessu loknu voru aðalmál þingsins tekin á dag- skrá hvert af öðru. Fyrst talaði Stefán Júlíusson, bóka- fulltrúi, um skólabókasöfn. Urðu miklar umræður um málið. Um kl. 16 var gert hlé og drukkið síðdegiskaffi í boði menntamálaráðherra. Kl. 17 hófst þingfundur að nýju, og var þá flutt skýrsla sambandsstjórnar og reikn- ingar, urðu engar umræður um þessi mál. Næst á dag- skránni voru lagabreytingar. Ingi Kristinsson flutti fram- söguræðu og mælti fyrir tillögum, sem milliþinganefnd hafði samið. Urðu miklar og fjörugar umræður um laga- breytingarnar, þar sem inn í þær spunnust umræður um úrsögn úr B.S.R.B. Fundur hófst að nýju laugardaginn 6. júní kl. 9. Voru þá á dagskrá launa- og kjaramál. Framsögu í málinu höfðu Kristján Halldórsson og Svavar Helgason. Að framsöguerindum loknum tóku margir til máls. Var gert matarhlé kl. 12, en þá voru margir á mælendaskrá. Fundur hófst að nýju kl. 13.30. Var þá haldið áfram umræðum um launamálin. Næst á dagskránni voru frétt- ir frá Skólarannsóknum menntamálaráðuneytisins. Hörð- ur Lárusson flutti stutt erindi um það helzta, sem unnið er að af Skólarannsóknum. Síðan tóku margir til máls, og auk þess svaraði frummælandi fyrirspurnum. Síðasta málið á dagskrá þingsins á laugardag var umræður um kennaramenntunina. Þeim umræðum var lokið kl. 16.30, en þá fóru þingfulltrúar í heimboð til forseta íslands að Bessastöðum. Herra Kristján Eld- járn bauð gesti velkomna með ræðu, en síðan nutu þeir gestrisni forsetahjónanna í tæþar tvær klst. Edda Eiriksdóttir, 2. forseti þingsins, þakkaði góðar mót- tökur með snjallri ræðu. Fundur hófst kl. 14 á sunnudag, en nefndir höfðu starfað fyrir hádegi. í upphafi þingfundar kvaddi formaður sambandsins, Skúli Þorsteinsson, sér hljóðs utan dagskrár vegna þeirrar einróma ákvörðunar þingsins daginn áður að gera Pálma Jósefsson, fyrrv. skólastjóra, að heiðurs- félaga sambandsins. Rakti formaður helztu æviatriði Pálma og þakkaði honum mikil og giftudrjúg störf i þágu kennarastéttarinnar. Heiðursfélaginn þakkaði síð- an sér sýndan heiður með stuttri ræðu. Þá var gengið til dagskrár og tekin fyrir álit nefnda. Fundarhlé var gert kl. 16 og drukklð síðdeglskaffi í boði sambandsstjórnar. Fundur hófst að nýju kl. 17 og var fram haldið um- ræðum um álit nefnda þingsins. Umræður og atkvæða- greiðsla stóð til kl. 19, en þá var gert matarhlé, enda var þá mikið eftir af óafgreiddum tillögum. Fundur var settur kl. 20.30 og var enn á dagskrá umræður og af- greiðsla tillagna. Urðu miklar og allsnarpar umræður um ýmsar tillögurnar. Bar þar hæst tillöguna um úr- sögn úr B.S.R.B., launatillögurnar og tillögurnar um breytingar á lögum sambandsins. Formaður B.S.R.B., Kristján Thorlacius, sat fund þennan og tók þátt í um- ræðum um úrsögn úr B.S.R.B. Síðasta mál þingsins voru kosningar. Framsögumaður kjörnefndar, Guðmund- MENNTAMÁL 129

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.