Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 5
„Sem biskup vil Rætt við sr. Auöi Eir Vilhjálmsdöttur Auður Eir Vilhjálmsdóttir er fædd í Reykjavík 21. apríl 1937. Við gefum henni orðið: „Foreldrar mínir eru Inga Árnadóttir húsfreyja og Vilhjálmur Þ. Gíslason úvarpsstjóri. Ég á tvö systkini, Þór sem er dómari og býr í Luxembourg og Yrsu Ingibjörgu sem er aðalgjaldkeri hjá Siglingastofnun. Þegar ég fæddist var pabbi skólastjóri Verslunarskólans við Grundarstíg og ég ólst þar upp. Þaðan er örstutt niður á Amtmannsstíg þar sem starf KFUM og K stóð í miklum blóma. Ég byrjaði að mæta þar, íyrst í sunnudagaskólanum og svo fram eftir öllum aldri. Ég fór líka í messur með pabba til séra Bjarna í Dómkirkjunni, bara stutta stund í einu. Allt þetta mót- aði mig, vonandi tii lífstíðar. Ég hef trúað á Jesú frá þvi ég man eftir mér og ræktað trú mína frá blautu barnsbeini. Kannski fór ég þó fyrst að starfa innan þjóðkirkjunnar þegar ég vígðist prestur safnaðanna í Súgandafirði árið 1974. Maður minn er Þórður Örn Sigurðsson, sem fyrr var latínukennari í MR og síðar starfsmaður Evrópuráðsins í Strass- bourg þar sem við bjuggum í nokkur ár. Hann er nú framkvæmdastjóri hjá flug- málastjórn. Síðan 1978 hef ég verið prestur í Rangárvallaprófastdæmi, þjóna þremur söfnuðum Kirkjuhvols- prestakalls og hef prestsetur í Þykkva- bæ. Ég tók embættispróf í árið 1962. Ég starfaði í kvenlögreglunni í Reykjavík með guðfræðináminu og í tíu ár eftir það og tók líka mikinn þátt í starfmu í KFUK og skólahreyfingunni samhliða guðfræðináminu. Ég starfaði síðar sem æskulýðsleiðtogi í Hjálpræðishernum í Reykjavík. Allt þetta var mér afar gagn- legt. Ég hef verið við framhaldsnám bæði við Háskólann í Strassbourg og Modum Bad í Noregi, ráðið mér einkakennara og lagt mig eftir guðfræði og tengslum hennar við daglegt líf. Ég hef staðið fyrir biblíuleshópum bæði í prestakalli minu og í Reykjavík og stofnaði Kvenna- kirkjuna með fleiri konum árið 1993. Ég hef skrifað bók um kvennaguðfræði sem heitir Vinátta Guðs og kom út á vegum Kvennakirkjunnar 1994.“ Hvers vegn gefurðu kost á þér til biskupsembættisins? „Biskup getur haft mörg meginmarkmið og manneskjan sem velst til að verða biskup getur valið sér þau markmið, því af svo mörgu er að taka. Ég sjálf kýs að velja mér það verkefni sem ég tel núna að þurfi helst að sinna innan kirkjunn- ar og lýtur að þjónum hennar, prestun- um. Ég vil vinna að því að bæta kjör þeirra til mikilla muna og sinna skipu- lagi prestsembættisins og auka sálgæslu þeim til handa. Hvort kemur þetta inn á annað og leysir hitt. Hvorugur þessara þátta er í nægilega góðu lagi og brýnt að bæta úr. Ég tel að ef þeim verður sinnt sem skyldi leysi það svo ótalmörg önnur mál innan kirkjunnar. Þessu verður best lýst með því að segja að ég muni sem biskup verða prestur prestanna." Hvað á að einkenna góðan biskup að þínu mati? „í þeim efnum vil ég hafa orðin í Lúkasi 22:24-26 að leiðarljósi. Þar segir að þau sem vilji stjóma eigi vissulega að stjóma, en þau eigi að gera það með því að þjóna. Þetta segir okkur að stjórnand- inn á að greiða þeim leið sem njóta stjómunarinnar til að vinna sitt verk og stjóma sjálf sínum störfum." Ég vil vinna að pví að bæta kjör prestanna til mikilla muna og sinna skipulagi prestsembættisins og auka sálgæslu peim til handa.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.