Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 14

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 14
I „Dreifa þarf valdi biskups" Rætt við sr. Sigurð Sigurðarson Sigurður Sigurðarson er vígslu- biskup í Skálholti. Hann var íyrst spurður um uppruna sinn og bakgrunn. „Ég heiti Sigurður Sigurðarson og er fæddur í Hraungerði í Flóa 30. maí 1944. Foreldrar mínir voru sr. Sigurður Pálsson, sem þá var prestur þar, og Stefanía Gissurardóttir. Ég er það fimmta af sjö bömum þeirra. Ég var tólf ára gamall þegar við íluttumst að Sel- fossi, þar sem ég ólst upp eftir það. Ég er alinn upp við mikla trúrækni á bemskuheimili mínu og því kom það af sjálfu sér að maður leiddi hugann að Guði. Þegar ég var um það bil níu ára gamall þurfti ég að takast á við mjög alvarlegar samviskukvalir. Ég taldi mig hafa breytt rangt og bað Guð að íyrir- gefa mér en smám saman varð mér erfiðara og erfiðara að biðjast fyrir, þangað til ég leitaði með þetta til móður minnar, sem sagði mér að það væri rétt að leita fyrirgefningar Guðs en ég yrði líka að sættast við mennina. Ástæður þessara samviskukvala læt ég liggja milli hluta en í þeim hlaut ég ákveðinn trúarþroska sem ég hef búið að. Sem unglingur aðstoðaði ég föður minn við safnaðarstarf á Selfossi og lít svo á að þá hafi ég farið að sinna kirkju- legum málum. Ég varð stúdent frá MR 1965 og fór þá í guðfræðideildina. Árið 1971 útskrifaðist ég þaðan og sótti um Selfossprestakall sem þá var að losna. Þar hlaut ég kosningu og var vigður 19. desember sama ár. Ég þjónaði Selfoss- prestakalli óslitið í tuttugu og tvö ár að því undanskildu að ég fór utan til náms 1980-’81. Árið 1994 varð ég vígslu- biskup í Skálholti. Eiginkona mín er Arndís Jónsdóttir kennari og eigum við tvö böm, Stefaníu og Jón Magnús." Mörg hæf biskupsefni Hvers virði er trúin þér og hvemig rækirðu hana? „Mér finnst erfitt að hafa mörg orð um það. Allan minn starfsferil hef ég starfað sem prestur og maður skyldi ætla að trúin sé manni nokkurs virði. Ég gæti ekki hugsað mér lífið án trúarinnar. Ég ræki trúna íyrst og fremst í helgihaldi kirkjunnar og svo gleymi ég ekki að lesa bænirnar mínar.” Hvers vegna gefurðu kost á þér? „Fyrst og fremst vegna þess að til mín hafa komið ýmsir aðilar og farið þess á leit við mig. Mér er það hins vegar full- ljóst að það em afar margir prestar og guðfræðingar í kirkjunni sem gætu tek- ist á við þetta embætti og miklu fleiri en við sem nefnd emm til sögunnar í þessu biskupskjöri." Biskup sem ræður of miklu verður eins konar páfi Hvaða kostumjinnst þér að biskup ætti að vera búinn? „Meginhlutverk biskupsins hlýtur að vera fólgið í þvi sem Jesús sagði við Pét- ur, að leiða hjörðina. Biskupinn verður að stuðla að friði og einingu innan kirkjunnar. Meðal annars á það að koma fram í prédikun hans. Það er ekki svo lítið hlutverk þvi við stöndum frammi fyrir því sama hér og annars staðar í heiminum að kirkjan hér er ekki svo mikið að klofna í aðrar deildir heldur er hún að sundrast. Kirkjan verður að taka alvarlega á skipulagsmálum sínum. Þar er af mörgu að taka. Fýrir mig er nærtækast að nefna að ég sit hér í Skálholti sem vígslu- biskup. Sú biskupsstaða er í raun mála- miðlun sem gerð var á sínum tíma milli þeirra sem vildu skipta biskupsdæminu í þrennt og þeirra sem ekki vildu skipta þvi í þrennt. Útkoman er eitt biskups- dæmi en þrír biskupar. Ég tel það skipta miklu máli fyrir kirkjuna að þessi biskupsembætti verði öll samvirkari en verið hefur, hvort sem við skiptum Meginhlutverk biskupsins hlýtur að vera fólgið í pví að leiða hjörðina.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.