Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 16

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 16
A mörkum lífs og Fimmtudaginn 21. nóvember 1996 gekkst Sigvaldi Björgvinsson undir mikla og flókna aðgerð þar sem skipt var um lifur í honum. Nokkr- um mánuðum áður höfðu þau Sigvaldi og Edda Ýr tekið þátt í dauða- striði móður Eddu og fylgt henni til grafar í lok júlí sama ár. Þau voru flutt úr Dalselinu þar sem þau höfðu átt heima en nýja heimilið við Vesturás var enn hálfkarað og búslóðin öll í kössum í bílskúmum þar. Athvarf áttu þau í Sigluvogi þar sem Edda hafði alist upp en nú var ljóst að Sigvaldi hafði hvorki heilsu né krafta til að vinna við nýju íbúðina eins og til stóð og von var á fjölgun í fjölskyldunni í byrjun næsta árs. Ófrisk og í sárum eftir móðurmissinn horfir Edda upp á mann sinn þjást og veslast upp. Hvað skyldi framtíðin bera í skauti sér? Milli vonar og ótta verða þau að láta hverjum degi nægja sína þjáningu. Sigvaldi Björgvinsson er 34 ára sölu- maður sem starfað hefur í rúm 10 ár hjá Guðmundi Arasyni ehf. Kona hans, Edda Ýr Guðmundsdóttir, er 28 ára sjúkraþjálfari og starfar á Endurhæfing- ardeild Landspítalans. Þau tóku því bæði vel að gefa lesendum Bjarma hlut- deild í reynslu sinni, ótta, von og trú. Æska og fyrstu kynni Það er liðið tæpt ár frá lifrarígræðslunni þegar spyrill Bjarma knýr dyra hjá þeim Eddu og Sigvalda þar sem þau hafa bú- ið sér snoturt heimili á friðsælum stað við Vesturás í Árbænum. Móttökur eru hlýjar. Þau líta bæði vel út, virðast glöð og sátt við lífið og hið sama má segja um soninn, Davíð Amar, sem er þriggja ára og þegar farinn að annast og gæta litlu systur, Berglindar Elvu, sem er að taka sín fyrstu skref þessa dagana. Ekkert bendir til þess að hér búi fjöl- skylda sem árinu áður háði tvísýna bar- áttu á mörkum lífs og dauða. Þau em fyrst spurð um æskustöðvar, áhugamál og þeirra fyrstu kynni. S: Ég er næstyngstur í hópi fjögurra systkina. Alinn upp i Keflavik, í Smára- túninu, alltaf á sama stað. Ég var í húsi nr. 42 en vinur minn Ársæll Aðalbergs- son, sem nú er formaður Skógarmanna KFUM, bjó í húsi nr. 46. Við lékum okkur oft saman og vomm jafnan kall- aðir Silli og Sæli. Þau gælunöfn loða við okkur enn. E: Mínar æskustöðvar voru í Siglu- voginum í Reykjavik og eins og Silli þá átti ég alltaf heima á sama stað, allt þar

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.