Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1998, Blaðsíða 10

Bjarmi - 01.07.1998, Blaðsíða 10
Mun vonandi greinarinnar Rætt við GuðlciugLL BJörgvinscióttur og IIruuci Hlöðversdóttur um stofuuu J'élcigs kris tinfræðikennarci Ivor hittust nokkrir kennarar á fundi til að ræða meðal annars stofnun félags kristinfræðikenn- ara. Hvatamenn að fundinum voru tveir ungir kennarar, þær Guðlaug Björgvinsdóttir í Smáraskóla í Kópavogi og Hrund Hlöðversdóttir í Hamraskóla í Grafarvogi. Þær útskrifuðust báðar frá Kennaraháskóla íslands vorið 1997 með kristin fræði sem valgrein. Bjarmi tók þær tali og spurði hvernig hugmyndin að stofnun félagsins hefði kviknað. Guðlaug: Þetta byrjaði sem hugmynd að nokkurs konar hugmyndabanka í kristnum fræðum. Við höfðum hist nokkur sem útskrifuðumst saman og skipst á hugmyndum í kennslu ýmissa greina. í framhaldi af því ræddum við um að koma upp möppu sem safna mætti í kennsluhugmyndum í kristnum fræðum. Slík mappa gæti verið aðgengi- leg, t.d. í kennslumiðstöð Kennara- háskólans, eða að komið yrði upp heima- síðu á netinu með slíku efni. Hrund: í framhaldi af þessu fórum við að ræða um það hvort til væri einhver félagsskapur kristinfræðikennara eða hvort grundvöllur væri fyrir slíkan félagsskap. Guðlaug: Þegar við vorum að skipu- leggja hugmyndabankann og undirbúa það að hittast til að miðla dæmum um kennslu í kristnum fræðum þá kom þessi hugmynd fram um að stofna félag. Hrund: Við sáum fram á það að ein- hverjir yrðu að halda utan um hugmyndabankann, bæta í hann og koma honum á framfæri og þar kæmi félag að góðum notum. Sjáið þið Jyrir ykkur að þetta geti orðið að veruleika? Hrund: Við fórum af stað núna í vor og akváðum að halda fund í lok apríl til að kynna kennsluhugmyndir og náms- efni í kristnum fræðum. Við vorum fimm kennarar frá fjórum skólum sem ætluðum að kynna efni sem við höfðum verið að vinna með. Við ákváðum síðan að kynna jafnframt þessa hugmynd um stofnun félags kristinfræðikennara. Hún fékk mjög góðar undirtektir á fundinum og einróma álit að þörf væri á slíkum félagskap. Guðlaug: Það höfðu líka fleiri látið þá skoðun í ljós. Við sendum boð um fund- inn í skóla hér á höfuðborgarsvæðinu og það voru ýmsir sem hringdu og sögð- ust vilja vera með í framhaldinu þótt þeir kæmust ekki á fundinn. Við fund- um þannig áhuga hjá mörgum og það er greinilega þörf fyrir svona félag. Hvert verður hlutverk eða verkejni Jélagsins? Hrund: Félagið getur orðið góður vettvangur til að miðla fróðleik, hug- myndum og ýmsum upplýsingum varð- andi kennslu i kristnum fræðum. Við höfðum fundið það og heyrt í vettvangs- náminu okkar í kennaranáminu og einnig eftir að við fórum út í kennslu að sumir kennarar finna til óöryggis gagn- vart kristinfræðikennslunni og eru ragir við að fara út fyrir námsefnið og prófa nýjar hugmyndir. í sumum skólum er staða greinarinnar jafnvel mjög veik og kennarar veigra sér við að kenna hana. Guðlaug: Með stofnun félagsins vilj- um við ekki síður höfða til þessara kennara en ekki bara þeirra sem hafa kristin fræði sem valgrein eða hafa mikla reynslu í að kenna þau. Hrund: Félagið mun vonandi styrkja stöðu greinarinnar, vekja umræður um hana og kennslu í henni. Þá getur það orðið góður vettvangur fyrir samskipti þeirra sem hafa áhuga á henni og vilja styrkja sig í að kenna hana. Guðlaug: Við höfum líka velt því fyrir okkur að svona félag gæti stuðlað að námskeiðahaldi fyrir kennara í kristn- um fræðum. Okkur hefur fundist held- ur lítið framboð af slíkum námskeiðum og viljum bæta þar úr með því að hvetja til aukins námskeiðahalds á þessu sviði. Félagið gæti ýmist staðið sjálft fyrir námskeiðum eða verið í samvinnu við aðra, t.d. kirkjuna og endur- menntunardeild Kennaraháskólans.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.