Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2001, Blaðsíða 27

Bjarmi - 01.06.2001, Blaðsíða 27
i ALFA fyrir unglinga i i ALFA-námskeiðin hafa eins og kunn- ugt er verió kennd hér á landi í nokkur ár. Innan Kristilegu skólahreyf- ingarinnar og KFUM & KFUK hefur lengi verið reynt að beina ungu fólki á þessi námskeió enda veita námskeiðin góða trúarlega fræóslu og samfélag. KFUM & KFUK hafa undanfarin ár haft náið samstarf við ÆSKR og Fræðsludeild biskupsstofu um leiðtogafræðslu. Síðast- liðió vor kviknaði sú hugmynd aó þessir aðilar héldu sameiginleiga sérstakt ALFA- námskeið fyrir unglinga. Þessir aðilar leit- uðu síðan til Kristilegu skólahreyfingar- innar um samstarf. Námskeiðin voru að sjálfsögðu haldin í nafni Biblíuskólans við Holtaveg hvað varóar KFUM & KFUK og KSH eins og önnur námskeið á vegum þessara aðila. Nokkrar vangaveltur urðu um heppi- lega tímasetningu á slíku námskeiði. Markhópurinn var leiðtogar úr KFUM & KFUK og starfi kirkjunnaar ásamt ung- lingum úr KSS á aldrinum 15-18 ára. Að lokum urðu menn ásáttir um að laugar- dagar kl. 17-19 gætu verið heppilegir. Ekkert æskulýðsstarf er á þeim tíma og margir eru bara að bíða eftir aó komast á KSS-fund eða gera eitthvað annaó á laugardagskvöldi. Þetta virtist sýna sig að vera rétt því það voru um 40 unglingar sem skráðu sig á námskeiðið. Nokkrir heltust úr lestinni í upphafi en 33 unglingar tóku þátt í nám- skeióinu og flestir þeirra luku því. Fræðsludeild kirkjunnar hafði á sama tíma ráðið sr. Kjartan Jónsson til að þýða sérstakt ALFA-námskeið fyrir ungl- inga og var ákveðið að kenna það. Helgi Císlason æskulýðsfulltrúi KFUM & KFUK, Petrína Mjöll Jóhannesdóttir fræóslufulltrúi á Biskupsstofu, Ragnhild- ur Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri KSH og sr. Yrsa Þórðardóttir framkvæmda- stjóri ÆSKR skiptu með sér kennslunni. Kennslan hófst síðan 27. janúar og henni lauk með ALFA-helgi 16.-17. mars. Kennt var í Aóalstövðum KFUM & KFUK við Holtaveg. I hvert skipti var farið yfir tvo kafla enda efnið fyrir unglinga nokkru létt- ara en það sem ætlað er fullorðnum. Reyndar kom fljótlega í Ijós að unglinga- efnið er í raun ætlað yngri unglingum meó litla reynslu eða þekkingu á kristindómi og því gripu kennarar gjarnan til þyngra efnis. I kennslunni var farið í grundvallaratriói kristinnar trúar og lögð áhersla á að ungl- ingarnir fengju að kynnast Jesú sem per- sónulegum vini og frelsara. Þá var fjallað um samfélag kristinna manna, biblíulestur og bæn og hvaða áhrif það hefur á líf okk- ar aó lifa sem kristnir einstaklingar. Skipu- lag ALFA fýrir unglinga var með svipuðu sniói og venjuleg ALFA-námskeið nema sameiginleg máltíð var aó lokinni kennslu en ekki á undan. Þar urðu oft skemmtileg- ar samræður. ALFA-helgin í Ölveri var að sjálfsögðu hápunktur námskeiósins enda gafst þar betra tækifæri til aó kynnast og ræða sam- an, bæði fyrir þátttakendur og kennara. Þátttakendur létu í Ijós þá skoðun sína í lok námskeiósins aó það hefði í raun verið of létt og undir þaó taka kennarar. Að öóru leyti voru unglingarnir ánægðir og margir kváðust vilja halda áfram. Reynslan sýnir líka aó unglingarnir sækj- ast eftir aó koma saman og að það er því heppilegt að bjóða upp á sérstök nám- skeið ætluð unglingum og ungu fólki. Biblíuskólinn við Holtaveg vill fyrir sitt leyti sjá til þess að áframhald verði á þess- um námskeiðum. Næsta haust verður því boðið upp á ALFA-námskeið fyrir ung- linga og ungt fólk á laugardögum kl. 18. 27

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.