Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1969, Blaðsíða 33

Æskan - 01.05.1969, Blaðsíða 33
Á síðastliðnu ári urðu miklar breytingar innan hljómsveita hérlendis, og út úr þeirri hringiðu skapaðist hljómsveit, sem nú á miklum vinsældum að fagna, það er hljóm- sveitin JÚDAS frá Keflavík. Að undanförnu hafa þeir verið mikið í sviðsljósinu bæði af þeim skjóta frama, sem þeir hafa hlotið og þeirri hæfni sem þeir hafa sýnt, og eins af hinu einkenni- lega nafni sem þeir bera og mikið hefur verið um rætt. Á þeim forsendum vék ég mér til umboðsmanns þeirra Sigurðar Garðarsson- ar, sem að undanförnu hefur algerlega séð um framgang þeirra, og sem dæmi má nefna að hann skipulagði hljómleika þá er haldnir voru á þeirra vegum f Nýja Bfói í Keflavik til styrktar ekkjum þeim er verst urðu úti í sjóslysunum 6. til 9. marz 1969. Hann varð fúslega við þeirri beiðni minni að svara nokkrum spurningum varðandi hljómsveitina. „Þá spyr ég þig fyrst, Sigurður, hvað heldur þú að valdið hafi hinum skjóta frama þeirra?“ ,,Ég tel, að Magnús hafi átt nokkurn þátt I því, þar eð hann hafði fengið nokkra inn- sýn [ gang þessara mála, en meginástæð- una tel ég þó, að þeir eru allir góðir hljóð- færaleikarar og mjög samrýmdir." „Hvað getur þú sagt mér um fortíð þeirra sem hljóðfæraleikara?“ „Þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa byrjað ungir hljóðfæraleik. Vignir Berg- •nann byrjaði að læra áfiðlu ÍTónlistarskóla Keflavfkur, jafnframt því sem hann spilaði Magnús Kjartansson, orgel og trompet. Finnbogi Kjartansson, bassi. Ólafur Júliusson, trommur. á gítar, einnig hefur hann snúið sér að flautuleik. Ólafur Júlíusson byrjaði sem trommuleikari í Drengjalúðrasveit Keflavík- ur og hefur leikur hans þróast upp í beat nútímans. Magnús Kjartansson lærði píanó- leik og er útskrifaður sem trompetleikari írá Tónlistarskóla Keflavíkur. hann hefur leikið á bassa og leikur nú á orgel eins og flest- um er kunnugt. Nú starfar hann sem tón- listarkennari við Barnaskólann í Keflavik. Finnbogi Kjartansson hefur leikið á orgel og leikur nú á bassa, en honum er flest til lista lagt. Ég vil geta þess að þeir stefna að þvf að notfæra sér hljóðfærakunnáttu sína í fjölbreyttum rnæli." „En hvað vilt þú segja um hið umdeilda nafn þeirra, JÚDAS?“ „Þegar að því kom að velja skyldi nafn, kom nafnið JÚDAS til greina, varð það síðan svo umtalað, að það þótti sjálfkiörið. Sjálfum finnst mér óþarfi að tvinna kristi- legum heimildum inn í þetta eins og margir hafa gert, þar eð bæði kemur fyrir góður og illur JÚDAS í Biblíunni." „Hvað er í bígerð hjá ykkur JÚDAS- mönnum?" „Það er Iftið hægt að segja um það eins og stendur, þeir hafa hugsað sér að bæta við sig hljóðfærum, svo um fjölbreyttari músík verði að ræða, en þeir leggja mikla áherzlu á að spila lög sem íólkinu líkar. Ef þetta gengur allt vel er kominn grund- völlur fyrir plötu, en hún kæmi þá á mark- aðinn eins fljótt og hægt er.“ Ég þakkaði Sigurði fyrir samtalið og læt það nægja, en ef einhverjir vilja fá fleiri upplýsingar um þá félaga þá sendið bréf til Sigurðar Garðarssonar, pósthólf 42, Keflavík. Síðan vildi ég óska JÚDASI góðs gengis í framtíðinni. Þegar ég gekk á JÚDASAR fund Vignir Bergmann, gitar, fiðla og flauta. 269
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.