Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 26

Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 26
Flestir þekkja ævintýri H. C. Andersens um litlu stúlkuna meS eldspýturnar. AnnaS heimsfrægt skáld, Dostojevski, hefur skrifað um svipað efni, og fer saga hans hér á eftir í íslenzkri þýðingu. Fjodor Dostojevski. Beininga- drengurinn Smásaga eftir FJODOR DOSTOJEVSKI g er skáld og ég býst við, að ég hafi skáldað þessa sögu. Þegar ég segi „býst við“, þá er ég raunar viss um, að ég hafi skáldað hana. En af einnl eða annarri ástæðu finnst mér, að þetta hljóti raunverulega að hafa gerzt, það hlýtur að hafa borið við jólakvöld nokkurt I stórri borg í miklum kulda. Ég sé drenginn fyrir mér, þetta er lítill drengur, aðeins sex ára eða yngri. Þessi drengur vaknaði að morgni dags I hráköldum kjallara. Hann var í eins konar frakkaræfli utan yfir sér, en skalf af kulda. Hvítur gufustrókur stóð út úr hónum, þegar hann andaði, og hann skemmti sér við það, þar sem hann sat á harðri kassabrík, að banda gufunni frá sér út [ loftið. En hann var óskaplega svangur. Hvað eftlr annað hafði hann gengið að fletinu, þar sem móðir hans lá veik á næfurþunnu teppisræksni. Hvernig hafði hún komlzt hingað? Frá einhverju smá sveitaþorpi hafði hún komið hingað með drenginn sinn, en hafði svo skyndilega orðið veik. Kerlinguna, sem leigði út svefnfleti fyrir fá- tækt fólk, hafði lögregian tekið daginn áður vegna ölæðls, en hún hafði byrjað hátíðina í fyrra lagi. I öðru skúmaskoti I kjallaranum lá áttræð aðframkomin kona og stundi af kvðlum. Hún var amma og hafði gætt barna sinna og barna- barna, en lá nú þarna einsömul og háði dauðastríð sitt. Hún rumdi og stundi og atyrti drenginn, svo að hann varð hræddur og þorði ekki að koma nærri henni. Hann hafði fundið vatn útl I ganglnum, en gat hvergi fundið svo mikið sem brauðskorpu til að eta, og margsinnis reyndi hann að vekja móður sína. Að lokum varð hann myrkfælinn, það rökkvaði, en enginn kveikti Ijós. Hann þreifaði á andliti móður sinnar, en skildi ekkert í því, hvern- ig á því.stóð, að hún hreyfði sig ekkert; hún var köld eins og múrveggir kjallarans. Það var hryllilega kalt hérna, hugsaði hann. Hann stóð stundarkorn kyrr með hendurnar á öxlum liksins, svo blés hann i kaun til þess að ylja sér á fingrunum, fann húfuna sína í hálfmyrkrinu og smaug út úr kjallaranum. Hann vildi hafa komizt út fyrr, en var hrædd- ur við stóran hund, sem allan daginn hafði verið geltandi á tröppum við dyr nábúans. Nú var hundurinn farinn, og drengurinn gekk út á götuna. En sú borg! Aldrei hafði hann séð neitt þessu likt. ( þæn- um, sem hann kom frá, var kolsvarta myrkur á næturnar, aðeins eitt Ijósker fyrir alla götuna. Byrgt var fyrir glugga litlu húsanna og göturnar voru mannlausar eftir að myrkt var orðið. Fólkið lokaði sig inni í húsum, það voru aðeins hundarnlr — og það var nóg af þeim — sem héldu uppi hávaða og gelti um nætur. En þar hafði honum samt liðlð vel, fengið nóg að borða og verið hlýtt. Ó, guð gæfi að hann gæti nú fengið ofurlítið að borða! Þvilík umferð og ys og þys alls staðar, blindandi skær Ijós og mannhaf um allt — og þar að auki hestar og vagnar. En kuldinn, þessi bftandi kuldi. Hln várma andgufa steig sem strókur út frá nösum hestanna og niður um þunnt snjólagið yfir götu-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.