Æskan - 01.09.1976, Blaðsíða 13
^ ■eiSinni til Stokkhólms bauS flugstjórinn, Viktor ASalsteinsson, þeim Ósk og Rögnvaldi fram í stjórnklefa þotunnar.
Perðafélagarnir Ósk og Rögnvaldur hittust í flug-
af9reiðslu Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli klukkan 6
að morgni. Þau höfðu bæði reynt að sofna snemma,
en það gekk erfiðlega. Ferðahugurinn hélt fyrir þeim
v°ku, og svo dálítill kvíði fyrir þvi hvort þau myndu
Vakna nógu tímanlega. Á Keflavíkurflugvelli var mikið
Urn að vera þennan morgun. Eftir brlferðina frá
^eykjavík, sem var dálítið svæfandi, fannst þeim
^'kið til um allan gauraganginn í Flugstöðinni. Tvær
^°tur Loftleiða voru að koma vestan um haf og héldu
afram til Luxemborgar og tvær þotur Flugfélags ís-
ands voru á förum, önnur til London, en þotan þeirra,
•Gullfaxi, til Oslóar og Stokkhólms. Eftir að hafa af-
ent farseðla og töskur hittu þau Ásdísi Alexanders
°9 Grétar Haraldsson og slaug bauð þeim inn í kaffi-
íer'una þar sem veitingar voru á boðstólum. Lítið
afði verið borðað um morguninn en nú fengu þau
ystina og það var gott að fá heita samloku og mjólk.
au keyptu sér eitt og annað í fríhöfninni en fljótlega
v°ru farþegar kallaðir um borð. Það var grenjandi
n9ning þegar þau hlupu út að þotunni en Viktor
ÁÖalsteinsson flugstjóri sagði að í Osló væri 16
sti9a hiti og sólskin og svipað veður í Stokkhólmi.
Þau Ósk og Rögnvaldur hugðu gott til að komast
í sumarveður. Rögnvaldur sagði að í Bolungarvík
hefði ekki sést sól í margar vikur, en Ósk taldi veðrið
í Vestmannaeyjum hafa verið öllu betra. Að minnsta
kosti sólskin alla síðustu viku. Samferðamennirnir
sögðu þeim frá ýmsu, sem fyrirhugað var að gera í
ferðinni og meðal annars, að Dagens Nyheter, stór-
blaðið í Stokkhólmi, myndi taka á móti þeim. Einnig
að stansað yrði í Osló, þar yrði stutt viðdvöl. Meðal
farþeganna var norskur blaðamaður, sem þau kynnt-
ust, hann hafði verið á íslandi í boði Flugleiða en
var nú á heimleið. Eftir flugtak og þegar þotan var
komin í fulla hæð fengu þau Rögnvaldur og Ósk að
koma fram f flugstjórnarklefa. Viktor Aðalsteinsson
flugstjóri sem sat vinstra megin sýndi þeim ýmis
mælitæki o. fl. Það kom í Ijós að Kristján Egilsson
flugmaður og Ósk voru mikið skyld. Bragi Jónsson
flugvélstjóri sat við mælaborðið og hann sýndi börn-
unum hvernig ýmsir mælar verkuðu og til hvers þeir
voru. Frammi í var sólskin eins og ævinlega þegar
flogið er yfir skýjum að degi til og Ósk fannst mikið
til um alla takkana og mælana. Hún var spurð hvort
hún myndi treysta sér til að læra flug og hún hélt að
það gæti vel verið svona þegar hún væri búin að
átta sig á hlutunum. Þau fóru afturí þar sem Ingibjörg
Nordal flugfreyja sá um þjónustuna ásamt Vigd.si
ÆSKAN - Hringið eða skrifið strax! Utanáskrift: Box
11