Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Ęskan

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Ęskan

						í pósturtan \

\,~"*"'

Póstfangið er:

Æskan, posttiólf 523,

121 Reykjvík.

Um veggmyndir...

Elsku, besti Æskupóstur!

Mig langar til að byrja á að þakka

fyrir meiriháttar og gott blað. Mér

finnst það að flestu leyti gott en hef

þó mest dálæti á Æskupóstinum,

Poppþættinum og Æskuvanda.

Raunar mættu líka vera sögur (bæði

smásögur og framhaldssögur) fyrir

stálpaða lesendur - og þrautirnar

mættu vera erfiðari.

Mér þætti vænt um að fá vegg-

mynd af Tom Cruise og River Phoen-

ix eða límmiða með þeim. Þeir eru í

miklu eftirlæti hjá mér.

X í Breiðholti.

Margir skrifa og biðja um vegg-

myndir af þeim sem þeir hafa dálœti

á. Val okkar fer eftir því hve margir

biðja um mynd af hinu vinsœla fólki

- oftast tónlistarmönnum, íþróttahetj-

um eða leikurum. Þér hefur orðið að

ósk þinni en því miður getum við ekki

uppfyllt óskir allra. Svo mörg nöfn

eru nefnd að ekki er hœgt að verða

við öllum beiðnum. Bréfin eru þó

geymd og ef til vill kemur einhvern

tima að því að „goðið" birtist á vegg-

mynd.

Præðsla um

shaðsemi áfengis

Kæra Æska!

Mig langar til að biðja um meiri

áfengisfræðslu í blaðið. Einstöku

sinnum hafa birst greinar um hvaða

áhrif áfengi hefur á fólk en mig lang-

ar til að vita hvernig áfengi skaðar

líkama og sál.

Það er staðreynd að stórlega hefur

dregið úr reykingum unglinga eftir að

farið var að fræða ítarlega um skað-

semi tóbaks. En mér finnst brenni-

vínið alveg hafa gleymst. Miklu,

miklu fleiri krakkar drekka en reykja

og flestir krakkar segja: „Það er allt í

lagi að drekka en ekki að reykja."

Væri ekki tilvalið, kæra Æska, að

þú tækir málið að þér og birtir a.m.k.

nokkrar greinar um hvernig áfengi og

eiturefhi geta farið með mann? Næst-

um allir kunningjar mínir drekka

áfengi en einungis einn tíundi.hluti

þeirra reykir.

Ég er pottþétt á því að miklu færri

unglingar byrjuðu að drekka en nú er

raunin ef áróður gegn áfengisfræðslu

yrði eins mikill og hann hefur verið

gegn reykingum að undanförnu. Nóg

um það.

Mig langar til að þakka fyrir yfir-

lýsinguna frá Poppþættinum um að

Bubba og Gramminu hafi ekki verið

hampað meira en öðrum í þættinum.

Það var hrakið með góðum rökstuðn-

ingi. Bubbi Morthens er einn besti og

vinsælasti tónhstarmaður á íslandi.

Af hverju í ósköpunum getur Steinar

hf. ekki endurútgefið gömlu, góðu

plöturnar, t.d. Utangarðsmannaplöt-

urnar og gömlu einleiksplöturnar?

Tinna.

Es.: Þú hefur heyrt þessa spurningu

milljón sinnum - en hvað lestu úr

skriftinni?

Svar:

I Æskunni birtast iðulega greinar

er minna á kosti heilbrigðra lífshátta

og að áfengi er óþarft og skaðlegt.

Frœðsluþœttir hafa þó ekki verið í

blaðinu að undanförnu að kalla megi.

I þessu tölublaði birtum við grein eftir

Árna Einarsson, starfsmann nefndar

um átak í áfengisvörnum, - um það

að áfengisneysla og íþróttaiðkun eiga

ekki samleið.

Ymsir telja að frœðsla hafi á stund-

um bfug áhrif, vekji t.a.m. forvitni og

ýti undir áfengisneyslu. Nauðsynlegt

er þó að allir viti skil á skemmandi

áhrifum áfengis og hœttu sem fylgir

tímabundinni og varanlegri lömun

heilastarfsemi vegna eituráhrifa þess.

Við munum lýsa því í nœstu blöðum.

Mér kœmi ekki á óvart að þú vœrir

athafnasöm stúlka, viljasterk og fö"

fyrir, hrein og bein íframkomu, eftu

vill dálítið ráðrík. Gott er að þú átt

þér hugsjón að berjast fyrir. Þanmg

líður þér sennilega best. Þú munt vera

heiðarleg og einlœg. . .

Mjög sætar

og shemmtilegar.. •

Kæra Æska!

Við erum tveir drengir í MeW"

skóla. Okkur fannst félagslífið í f'

bekk í vetur sem leið ekki nógu f)01"

breytt. Við vonum að það verði lífleg1

í 6. bekk.

Draumaprinsessurnar okkar eru

mjög sætar og skemmtilegar og ág^1"

ar í knattspyrnu. Önnur er ljóshær

og heitir Inga M. en hin er skolhær

og heitir Guðný. Við vonum »0

ruslafatan sé full því að við viljum

gjarna að þær sjái þetta.

Tommi og Dustin H.

Paldi tennurnar. • •

Kæri Æskupóstur!

Ég sendi þér skrýtlu:

Eiginmaðurinn: Loksins gat ég vaW

konuna mína af því að naga á s

neglumar.

Nágranninn: Hvernig fórstu að þvi-

Eiginmaðurinn: Ég faldi tennurnar

hennar!

Ég ætla líka að lýsa draumaprinsW"

um mínum. Hann er brúneygður og

dökkhærður og æðislega sætur. Hann

er kallaður Berti og fer í 7. bek

Seljaskóla í haust.

Lísa.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Mynd I
Mynd I