Langar að verða dýralæknir Guðrún Árný Guðmundsdóttir er ell- efu ára. Hún er yngst þriggja systkina, á 17 ára bróður, Vilmund, og tvítuga systur, Hugrúnu Lindu. Hún er í 5. bekk í Breiðagerðisskóla og segir að sér þyki stærðfræði skemmtilegasta náms- greinin. - En hvað þykir þér skemmtilegast að gera? Að hjóla og leika mér á hjólaskaut- um - og í knattspyrnu." - Æfirðu knattspyrnu með einhverju félagi? Nei, ekki enn, en ég æda að æfa hjá Víkingi í vetur. Við krakkarnir erum bara að íeika okkur á velh rétt hjá hest- húsum Fáks." - Eru ekki færri telpur en drengir í hópnum? Nei, nei, við erum álíka margar og þeir. Já, við höfum keppt við strákana og stundum unnið. Oftast velja þó ein- hverjir í hð sem í eru bæði strákar og stelpur." - Stunda fleiri í fjölskyldunni íþrótt- ir? Bróðir minn æfir knattspyrnu og leikur með Víkingi. Pabbi var einhvern tíma þjálfari, minnir mig." - Áttu einhverja eftirlætis íþrótta- menn? ,Já. Knattspyrnumanninn Ruud Guhitt og Kristján Arason handknatt- leiksmann." - Hefur þú æft aðrar íþróttagreinar - eða lært dans? Ég var í fimleikum hjá Ármanni í fyrra og í jassballett í hittifyrra." - Hefurðu kannski fengist við fleira en þetta? Ég var að læra að spila á orgel í fyrra og fer ef til vill aftur í vetur. Ég hef líka verið í barnakór í þrjú ár. Við höfum sungið á ýmsum stöðum og tókum þátt í kóramóti í Kópavogi síðast hðinn vet- ur. Já, já, ég hef haft í nógu að snúast." - Hefur þú hugsað um hvað þú viljir læra og starfa í framtíðinni? Já, mig langar til að verða dýralækn- ir." - Áttu dýr? Við eigum hund. Hann er fjögurra ára blendingur. Nei, það veit enginn nákvæmlega af hvaða tegund hann er en móðir hans var íslensk-skosk. Hann var svo lítill þegar við fengum hann að það var hægt að halda á honum í annarri ÆSKAN15