Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Ęskan

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Ęskan

						Ein sem grætur

Halló Æska!

Mér líður rosalega illa. Því

valda mamma mín og systir

mín. Hún er 20 ára. Um daginn

sátum við, ég, mamma og systir

mín inni í stofu. Mamma var

eitthvað að bora í nefið og ég

sagði:

„Mamma, hættu þessu. Þú

ert ekkert fyndin." Systir mín

þagði. Þegar ég sagði: „Þú ert

ekkert fyndin," þá sagði systir

mín „Jú," og fór að hlæja gervi-

hlátri. Mamma mín og systir

reykja og mamma veit hvað mér

er rosalega illa við sígarettu-

reyk.

Systir mín var að reykja og

svo geymdi hún sígarettuna í

öskubakkanum því að hún

skrapp aðeins fram. Við

mamma sátum hjá henni og

meðan hún skrapp fram tók

mamma sígarettuna og tók stór-

an reyk og blés framan í mig.

Það er eins og þær séu að reyna

að ergja mig og þær gera miklu

meira en þetta. Þær t.d. hvíslast

á fyrir framan mig og fleira. Ég

reyni að láta þetta ekki á mig fá

en ég fer alltaf upp í herbergið

mitt og græt. Ég þori ekki að

segja bestu vinkonu minni þetta

og vil það ekki. Pabbi sagði mér

að láta þetta ekkert á mig fá en

ég hef reynt og reynt, það geng-

ur ekkert.

Mamma er skemmtileg þegar

systir mín er ekki. Systir mín er

alltaf svona. Það er ekki langt

síðan þetta byrjaði, svona um

það bil 1-2 mánuðir. Ég þoli

þetta ekki lengur. Ég græt oft á

dag og oft kemur pabbi og segir

alltaf það sama.

Elsku Æska, viltu birta þetta.

Mér líður best þegar ég er

heima hjá vinkonu minni.

Giskaðu á hvað gömul ég er.

Garfield.

Það er greinilegt að þú ert leið

og döpur yfir samveru og sam-

skiptum ykkar mœðgna. Gott er

að þú skulir rœða við pabba

þinn enda þótt þér líki ekki svör

hans. Það er yfirleitt betra að

geta rœtt um hlutina, en að

byrgja erfiðleikana inni. Það er

oft eins og hugsanir og tilfinn-

ingar verði manni sjálfum Ijós-

ari en ella, ef hann getur komið

orðum að þeim annaðhvort með

því að tala um þœr eða skrifa.

Leiði þinn gœti átt rœtur íþví

að þér fyndist mamma þín taka

systur þína á einhvern háttfram

yfir þig þegar þið eruð allar

þrjár saman.

Það er greinilega þó nokkur

aldursmunur á ykkur systrum.

Þú segir að systirþín sé tvítug og

ég giska á að þú sért á aldrinum

11-12 ára. Þið systurnar eigið því

trúlega ekki mörg sameiginleg

áhugamál núna en það á eftir að

breytast þegar þú verður eldri.

Systirþín erfarin að standafull-

orðna fólkinu í fjölskyldunni

nœr en fyrr og á trúlega meira

sameiginlegt með því en þér.

Trúlega vœri gott fyrir þig að

rœða þetta við mömmu þína,

segja henni frá því hvernig þér

líður þegar þið eruð allar þrjár

saman. Einnig gœti verið gott

fyrir ykkur systurnar að gera

eitthvað saman, bara tvœr.

Þannig gœtuð þið kynnst betur

og dregið úr spennunni á milli

ykkar. Þið getið áreiðanlega gert

margt skemmtilegt saman og

rœtt málin, t.d. ólíka afstöðu til

reykinga sem þú ert á móti og

hún með. Þú tekur greinilega

sjálfstœða afstöðu innan fjöl-

skyldu þinnar í því máli.

Þú hefur gert margt gottfram

að þessu til að reyna að láta þér

líða vel. Haltu því áfram, t.d. að

hafa gott samband við vinkonu

þína og þess háttar. Það tekur

oft dálítinn tíma að móta nýjar

leikreglur í samskiptum en aðal-

atriðið er að reyna að hugsa já-

kvœtt og finna leiðir sem duga.

Feimni

Halló, elsku Æska!

Ég á í miklum vandræðum

með sjálfa mig. Ég hef einu

sinni byrjað að vera með strak

en það var svo ömurlegt að það

stóð ekki nema í viku.

Vandamálið hjá mér er það að

ég er svo rosalega feimin. Þegar

ég var með stráknum þorði eg

ekki einu sinni að hringja í hann

og þegar ég var úti með honum

var ég alltaf með vinkonur mín-

ar í kringum mig. Og núna, et

ég yrði alveg vitlaus í einhvern

strák, myndi ég aldrei taka í mál

að byrja að vera með honum,

jafnvel þótt hann vildi það sjálf'

ur því að ég er svo hrædd um að

sambandið yrði eins og hið

fyrra. Allt er því að kenna hvað

ég er feimin. Vonandi hefurðu

eitthvert ráð við feimni rninm-

Svo er annað vandamál. Brað'

um fara jafnaldrar mínir sum'r

að drekka vín. Ég er mjög *

móti drykkju en er svo hrædo

um að vinir mínir fái mig til a

drekka. Og ef ég geri það Þá

geti ég kannski ekki hætt! Von-

andi hefurðu ráð handa mér. 0?

að lokum: Hvað lestu úr skrift-

inni minni? Ég veit að hún e

ljót. Hvað heldurðu að ég se

gömul?

Með fyrirfram þökk!

Mína önd!

Feimni og öryggisleysi í «"""

skiptum við aðra stafar að h'u

24ÆSKAU

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Mynd I
Mynd I